Friday, July 2, 2021

Its not easy being green

Tengi mikið við Kermit frosk þegar hann talar um að það sé ekki auðvelt að vera grænn.

Síðasta helgi situr ennþá í mér. Vorum á tjaldsvæðinu á Hellu og allt var æðislegt. Kyrrð og ró og sveitalíf. Var að njóta.

Erum í langtímastæði svo það er kyrrlátara þar. Það má ekki vera þarna nema maður leigi langtímastæði.

Það var sumar og sól. Allt í einu byrjar nágranninn á móti sem er nú reyndar fólkið okkar, fjölskyldan, að blasta tónlist hátt í svona bassaboxi. 

Það væri svo mikið óskandi að vera ekki eins og maður er stundum.

En það sem gerðist var að taugakerfið mitt framkallaði nær samstundis líkamleg viðbrögð. Allt fer að púlsa og ég fer að finna til í bakinu og líða illa. Alveg eins og þegar nágranninn byrjar að bora í vegg. Miðtaugakerfið liggur undir árás. 

Sko. Ég er alveg kúl kona. Fer á tónleika og elska það. Sit í þessum skrifuðu orðum á uppáhalds kaffihúsinu mínu (Mama) og það er sumargjörningur  beint fyrir framan þar sem tvær stelpur blasta tónlist og dansa. Óvænt. Ég er kúl með það enda fór ég viljandi niðrí bæ leitandi að sumarfjöri.

Er alveg game þegar þetta er gert með ásetningi. Saman. En ræð illa við óvæntar "árásir" á taugakerfið. 

Komst einmitt að því að verkurinn í kjálkanum var út af mínu viðkvæma taugakerfi sem virðist stundum vera utanáliggjandi á líkamanum útþanið.

Ég setti víst upp einhvern svip og olli manninum mínum miklum vonbrigðum. Hann er reyndar einn af þessum mönnum sem skilur ekki kvíða til dæmis og misskilur allt svona. Skilur ekki svona lagað.

Finnst erfitt þegar fólk skilur þetta ekki. Sérstaklega makinn. Það var eins og ég væri að tala kínversku þegar ég var að gera mitt besta til að útskýra þetta fyrir honum. 

Hann stakk bálreiður upp á sálfræðing. 

Its not easy being green.



P.s. talaði um þetta við vinkonu mína sem sagði að þetta væri eitt einkenni einhverfu. Hún virðist halda að ég sé á því rófi. Mér finnst það fyndið af því að ég hef oft haldið að hún sé á einhverju rófi. Kannski ekki skrítið að við séum vinkonur og bondum.

No comments: