Friday, December 3, 2021

"Þú átt of mörg börn Svava."

Það er ákveðinn harmur í mínu lífi að bróðir minn er ekki systir mín.

Horfi oft öfundaraugum á systur. Systrabönd líta út fyrir að vera sterk og haldgóð. Systir er með þér út lífið, í hæðum og lægðum. Hlær með þér þegar það er gaman, gefur ráð og grætur með þér þegar svo ber undir. 

Símtal frá bróður: Ég gef þér ekki jólagjöf og ekki gefa mér. Núna fá bara börnin undir fermingu gjafir. Einfalda þannig lífið.

Það fór þannig að ég valdi mér mann sem er ekki mikið gefinn fyrir faðmlög heldur.

Það er því kannski ekkert svo skrýtið að líklegast væri ég best geymd á SLAA fundum endrum og eins. Vera mín þráir nánd. (Það eru haldnir sérstakir ástarfíklafundir nokkrum sinnum í viku. Velviljaðar vinkonur mínar hafa bent mér á þetta.)

Það er reyndar alveg rétt. Þetta einfaldar lífið. Mér fannst reyndar alltaf dáldið jólalegt að finna bók fyrir hann bróður minn. Hann elskar bækur og vill alls ekki "current" eða mainstream bókmenntir heldur alltaf einhverjar sérstakar og öðruvísi. 

Verð reyndar vör við sterk viðbrögð þegar ég þyl upp börnin. Þegar ég vil vorkunn segi ég eins og er að ég er búin að vera með barn undir 8 ára í 19 ár. Ungar konur hrökkva við, jesúsa sig og segja bara vá eða eitthvað. Setja hönd fyrir munn. Við vitum jú allar að þetta tekur aðeins á.

Ég er samt fegin. 

Ég hef lengi haft áhyggjur af fólksfjölgun og þetta bendir til að fólk vill almennt eignast miklu færri börn en kynslóðin á undan.

Það er nú eitthvað..

P.s. Bróðir minn varð samt uppvís að því að gera hjarta emoji ❤ við status um daginn sem er alveg rosalegt. Þetta hefði aldrei gerst fyrir nokkrum árum. Kannski, bara kannski er von um að það sem Rihanna söng um rætist:

En líka:

P.s. eftir þessi jól verður bara eitt barn eftir ófermt hjá mér sem þýðir bara ein gjöf til okkar 6 manna fjölskyldu. 

P.p.s. ég á 3 börn sem er ekkert rosalegt. Á svo eina stjúpdóttur og einn mann. Sem sagt 5 börn. Jú ok, það er nú alveg eitthvað. 



No comments: