Thursday, October 20, 2022

Allar hliðar

Í gærkvöldi gerði ég heiðarlega tilraun til að sofna á bakinu.

Þegar ég gisti hjá vinkonu minni í London fyrir sirka 10 árum horfði ég á hana full aðdáunar sofa á bakinu. Óhrædd. Bauð heiminum birginn.

Þeir sem sofa á maganum eiga víst að vera eitthvað hræddir við heiminn og verja sig og allt sitt tilfinningalíf með að sofa á maganum. 

Sjálf sofna ég á vinstri hlið. Það á víst að vera gott fyrir meltinguna. 

Annars eru hliðarnar á mér undanfarið búnar að vera jafn ólíkar og yin og yang. Vinstri hliðin er venjuleg og heilbrigð. Ekkert að þar. Hægri hliðin aftur á móti er í ruglinu og er bara allt annar líkami. Bjagaður og boginn. Þetta á að vera karllæga hliðin. Shakti. Er veik þar. 

Vikan er búin að vera viðburðarík og erfið. Veikindi og vesen. 

Úff.

P.s. fíla Birni í ræmur. Döðlur líka.

No comments: