Friday, October 28, 2022

Amma

Þessi vika var tileinkuð ömmum mínum. Þær elskuðu mig báðar skilyrðislaust. Ég fann það.

Nú þegar ég er sjálf að verða amma hlakka ég til að elska líka ömmubarnið mitt skilyrðislaust. 

Vikan var erfið og blóðug. Erfið vegna verkja, það miklum að mér hefur bara alls ekki liðið vel.

Þegar svona ber undir og ég er svona lítil í mér og á svona bágt þá kalla ég stundum á styrk formæðra minna. Þær vaka yfir mér þegar ég þarf á að halda. 

Ég raðaði englunum mínum og ömmum í kringum mig þegar ég var að vinna í vikunni. Amma Alla hellti hlæjandi yfir mig fjólubláu ljósi. Góðlátlega. Amma Svava ausaði svo gylltu og silfurlituðu ljósi.

Ég fór á seremóníu í gær og þá sungum við einmitt fallega möntru til heiðurs formæðrum okkar. Ég finn hana ekki á YouTube enda er þessi mantra líklegast of heilög fyrir YouTube.

Ég get bara vonað að ég verði eins góð amma og ömmur mínar voru mér.


No comments: