Friday, October 7, 2022

Mun hatrið sigra?

Hljómsveitin Hatari hafði mikil áhrif á mig með Eurovision gjörningi sínum árið 2019. Á marga vegu. 

Á þessum tíma var ég að ganga í gegnum mikla andlega vakningu. Í kjölfarið á fyrsta KAP tímanum var ég mjög vakandi. Sá vel.

Skynjunin á ástinni og alheiminum var sterk. Hvernig við erum öll eitt.

Það lá við að mig langaði að útskýra fyrir bandinu að þetta væri misskilningur. Ástin myndi sigra. Alltaf. 

Þeim tókst að ýta á takka hjá mér. Fannst (og finnst enn) þau svo flott. Svalasta band sem ég hef séð í áraraðir. Búningarnir virka er kannski smekklega orðað. 

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Flóð jafnvel. 

Skilningur minn eða öllu heldur skynjun á mannlegu eðli hefur breyst. Heimsmyndin hefur breyst. Ég hef breyst.

Fjandakornið. 

Þau sögðu þetta allan tímann. 



No comments: