Ég er búin að vera edrú í 14 ár.
Mér finnst það æði.
Hef á tilfinningunni að ég hafi samt misst nokkrar vinkonur vegna þess.
Fyrir marga er ekki stuð og gaman nema áfengi sé haft um hönd. Sé þetta út um allt og get ímyndað mér að í mörgum vinahópum sé þetta límið.
Glugg glugg! Skál elskurnar!
Ég sá að það kom beint frá hjartanu þegar hún sagði óbeint að það væri ekkert fútt í mér lengur. "Hvað gerir þú eiginlega til að skemmta þér? Lyfta þér upp?!"
Mér fannst þetta gaman því að skilningsleysið var algjört.
Finn líka að margir fíla mig ekki af því að ég drekk ekki. Þau skella boozinu á borðið af því að það á að vera gaman í kvöld!
Annars er ekki gaman.
Elskurnar. Ef þið vissuð hvað mér líður vel án áfengis þá mynduð þið hætta líka.
Annars einkenndist vikan af náladofa og verkjum. Úff, veit eiginlega ekki hvað ég á að gera..
Namaste.
No comments:
Post a Comment