Friday, June 14, 2024

Ljósið

Ég vinn með ljósið og ég elska það. Það er mitt dharma.

Hið manngerða harða ljós er hins vegar ekki mitt. Alla daga vel ég að fara ekki á staði þar sem er flóðlýsing, mikil lýsing, óþægileg lýsing. Bara get ekki verið í þannig rými.

Það var því nokkuð áfall þegar eiginmaðurinn kveikti á stóra ljósinu inn í svefnherbergi sem er einmitt flóðlýsing þegar ég var nývöknuð í morgun. Á með augnleppana og sængina upp fyrir haus. "Passaðu þig á ljósinu, það er hættulegt!" sagði hann hátt fullkomlega ótillitssamur svona snemma morguns vitandi að ég þarf rólega morgna. Hann skilur ekki svona lagað.

Varð hugsað til bókar Auði Övu um ljósið og finnst svo dásamlegt að bókin hennar situr ennþá í mér. Þetta er svo falleg bók. Maðurinn er alla ævina að venjast ljósinu. Þetta er uppáhalds setningin mín í bókinni hennar um ljósmæður. Það var samt úr mörgum setningum að velja. Man það. 

Vikan var sérstök. Þetta var síðasta vikan sem ég var þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag að nudda og ég skil núna að þetta verður gott og er rétt ákvörðun; að vera bara með tvo daga. Það er nóg fyrir mig. Þetta varð allt að því of mikið. Mjög skrýtin orka í rýminu, þetta voru svo rosalega stórir og þungir hnútar sem var verið að losa um. Allavega mjög mikil losun í vinnunni með fólkinu, of hröð í sumum tilfellum. Kom heim mjög þreytt í gær.

Hápunktur vikunnar var í gær þegar kúnni sagði: "Þú ert mjög góð í því sem þú ert að gera." Þá varð ég mjög ánægð. 

Lágpunktur vikunnar var á mánudaginn þegar ég var að passa Styrmi og klúðraði fullkomlega að gefa honum að borða úr skvísu. Segjum bara að hann var ekki sitjandi og fékk gumsið ekki bara framan í sig heldur á fötin og allt fór út um allt. Skolaði úr buxunum og peysunni og öðrum sokknum (hinn slapp) og setti á ofninn til þurrkunar (virkaði síðast) en þegar ég var að fara keyra hann heim var bara peysan orðin þurr, buxurnar 70% og sokkurinn 80% og allt frekar skítugt:/

Verkefni vikunnar var að kaupa kerru fyrir Styrmi Orra svo ég geti labbað með hann um hverfið og montað mig. Vissi alveg að verkefnið var stórt af því ég rétt kíkti inn á fifan.is eða álíka og já, svona eins og mig grunaði kostaði kerran sem mig langaði í yfir 100.000 kr minnir mig. Horfði öfundaraugum á allar kerrur sem ég sá, ein amman var einmitt með svona kerru eins mig langaði í. Fór í Barnaloppuna og brá frekar mikið yfir verðinu á flottu kerrunum. Það er greinilega markaður fyrir barnavörur, ha? Endaði á að kaupa eina notaða á 12.000 kr sem er með þeim eiginleikum sem mig langaði í. Handhæg, ég get skellt henni í skottið og það fer lítið fyrir henni í geymslunni, það er hægt að setja bakið niður og það er skermur. 

Namaste. (Ljósið í mér sér ljósið í þér.)



 



No comments: