Thursday, June 6, 2024

Vika Stefáns

Þessi vika var líka vika Stefáns. Alveg kominn tími á að drengurinn fái athygli sko.

Grunnskólagöngu í Hlíðaskóla lýkur á lokaverkefni þar sem nemendur vinna saman og svo kynningu í sal fyrir foreldrana og básakynningu. Þetta var á þriðjudaginn. Stefán stóð sig mjög vel. Þetta er auðvitað svona an end of an era. Í dag er svo sjálf útskriftin. Hún er í Háteigskirkju. Stefán er kominn með gauralega klippingu og hálsmen og mikið swag í gangi hjá honum.

Vikan er búin að vera upp og niður. Það er komin smá þreyta í ættmóðurina. Þetta tímabil þegar skólinn er að klárast tekur aðeins á. Rífur aðeins í. Það sér ekki fyrir endann á félagslegum viðburðum fyrr en eftir helgi. Þá tekur vinnan og óvissan við. 

Einhver kvíði í mér. Hann fer ábyggilega þegar allt er yfirstaðið. Var ég búin að segja ykkur að mér líður best þegar ekkert er að frétta og ekkert í gangi? Það er vissulega þannig.

Hápunktur vikunnar var þegar Styrmir minn ömmukrútt horfði með augasteinunum sínum í mína þegar ég sat með hann upp í sófa. Aðeins að tékka hver væri að halda á honum. Hans sál að horfa á mína sál. Fallegt. Við tengdum.

Lágpunktur vikunnar er núna þegar ég er að bugast sem móðir. Þetta er allt dáldið mikið einmitt núna.

Verkefni vikunnar var ekki af verri gerðinni. Ætlaði að flækja það eitthvað en svo valdi ég bara ódýru og líklegast bestu leiðina. Það var sem sagt að skipta um gólfmottu í Pathfindernum. Hún var orðin svo gatslitin bílstjóramegin að það var komið gat í "gólfið." Það eru sem sagt sérstakar festingar fyrir sérstaka Nissan Pathfinder gólfmottu sem smellist í en það hefði kostað minnst 20.000 kall sýndist mér og hefði þurft að panta sérstaklega á internetinu. Frá Nissan umboðinu einhvers staðar í útlöndum. Eða Ameríku. Það er víst hætt að framleiða þessar sérstöku bílmottur sem eru frá 2012 framleiðslunni og blabla.. 

Friður til ykkar.

Namaste.



No comments: