Vikan hefur verið ein stór lexía sem ég er ekki enn búin að læra.
Ég á í mjög erfiðu sambandi við símann minn. Hann er í senn minn besti vinur en líka minn versti óvinur.
Svala tengdadóttir mín (hún heitir ekki Svala, hún er svöl) kenndi mér að auðvitað þarf maður ekki að svara skilaboðum um leið og maður fær þau. Það virkar ekkert þannig lengur. Heilinn minn vill samt svara strax skilaboðum til að þurfa ekki að hugsa um þau lengur. Vera skilvirk. En af öllum þeim alltof mikla tíma sem ég er í símanum þá koma vinnu-SMS-in oftast á verstu stundum. Á sunnudagskvöldum þegar mér líður vel. Þegar ég er komin upp í rúm. Þegar ég er að drífa mig í vinnuna. Ég er minn versti óvinur varðandi þetta. Af hverju tékka ég ekki á skilaboðum seinna? Óli minn hjálpaði mér að stilla símann á Do not disturb eftir kl 21 á kvöldin minnir mig. Því miður gerði ég þau mistök að setja mitt eigið símanúmer á gjafakortin í nudd og á nafnspjöldin. Fór í Vodafone og fékk mér annað símanúmer fyrir vinnuna eins og aðili á Bluesky ráðlagði mér. Mun héðan í frá ekki svara fyrirpurnum sem koma á kvöldin eða á sunnudögum.
Það fer líka óendanlega í taugarnar á mér að enginn virðist taka þetta eins mikið inn á sig og ég. Flestir aðrir nuddarar og fólk svarar bara þegar það hentar því. Mér finnst það það svalasta í heimi. Þarf bara að þjálfa heilann minn inn á það að svara ekki strax alltaf.
Allavega, verkefni vikunnar var að skila rauter í Vodafone. Það var nú ekki stórt verkefni en ég var svo dugleg og full af krafti í vikunni að ég útréttaði í búðum og slíkt mánudag, þriðjudag OG miðvikudag. Undirbúningur fyrir Danmörk á sunnudaginn. Fór líka í leikhús á þriðjudagskvöldið. Dugleg.
Hápunktur vikunnar var þegar kúnni spurði hvort ég væri heilari.
Lágpunktur vikunnar var á mánudagsmorguninn þegar ég var brjáluð og reið og leið yfir að hafa actually svarað fyrirspurn um nudd sem ég kom á kvöldmatartíma á sunnudagskvöldi og eyðilagði kvöldið. Eftir að hafa ráðfært mig við fólk þá á fólk víst að geta nú til dags sent svona fyrirspurnir hvenær sem er. Það býst ekki endilega við svari.
Þar höfum við það.
Namaste.
No comments:
Post a Comment