Friday, June 21, 2024

Sumarið

Mér líður vel.

Finn hvað allt er auðveldara í birtunni. Bara það að það sé bjart þegar maður vaknar léttir lundina. Er alveg hætt að finna fyrir þrýstingi fyrir að vera alltaf að gera eitthvað af því að það er sumar. Ég bara er og það er nóg. 

Þegar ég var yngri leið mér yfirleitt illa á veturnar. Eitthvað við endalaust myrkrið sem greip sálina. Hélt að ég væri komin yfir það og væri farið að líða vel á veturnar en fann að síðasti vetur var þungur veðurfarslega séð og reif bara ágætlega í. Tene ferðin bjargaði geðheilsunni algerlega.

Verkefni vikunnar tókst ágætlega held ég. Þetta eru nú alltaf smá ævintýr en verkefnið var að finna hljóðláta viftu fyrir nuddstofuna. Á sumrin staðnar loftið í rýminu dáldið og Edda (sú sem var að leigja með okkur) tók sína með svo núna þurfti viftu. Byrjaði að skoða internetið og fann búð þar sem standviftur voru bæði dýrar og ekki fáanlegar reyndar; ekki til á lager. Hringdi í Elko og var dáldið hissa að það voru bara sýningareintök eftir í öllum þremur verslunum Elko á höfuðborgarsvæðinu. Fór í Skeifuna og keypti eintakið þar á afslætti, þurfti bara að festa þrjá tappa á standana, held að það hafi tekist. Held að þetta verkefni hafi verið árangursríkt. Mér líður ennþá illa með kerruna sem ég keypti fyrir Styrmi. Finnst hún ekki flott, hún er með rauðum skerm sem mér finnst ekki flottur, er að spá í að lita hann (spreyja) svartan.

Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég fór sjálf í nudd hjá meistara Emil í Yogashala. Mikið var það gott nudd. Hann hlustaði og skildi verkefnið sem er því miður ekki alltaf tilfellið.

Lágpunktur vikunnar er núna þegar ég nenni ekki í vinnuna. Er að fara kenna í Mími og er bara ekki í stuði fyrir það. En Danmerkurferðin nálgast og launin sem ég fæ fyrir kennsluna duga næstum því fyrir einni hótelnótt. Whoop whoop!

Namaste.

 


No comments: