Dagur 1
Það er eitthvað við það að setjast upp í flugvél og fljúga burt sem gefur mér alveg sérstaka tilfinningu vellíðunar. Flugið til Kaupmannahafnar var æði. Það sem tók við - ekki svo mikið. Þessir tveir tímar sem tók okkur að komast frá flugvellinum og upp á hótelherbergi fara á delete takkann. Sérstaklega allt labbið með allan farangurinn, léttinn þegar við fundum hótelið, bara til að finna ekki herbergið og LABBA UPP fjórar hæðir með ALLAN farangurinn. Sjá svo að jú, það var víst lyfta...
Dagur 2
Fórum í Tivoli og áttum okkar besta dag. Vissi ekki að dóttir mín væri svona hrifin af tívolítækjum. Hún fór í hvert tækið á eftir öðru, þangað til hún fór að skjálfa með tönnunum og þá var það bara MEIRA. Sjálf var ég klárlega hrist og hrærð. Fórum ansi hátt upp, sáum yfir alla Kaupmannahöfn en svo þurfti ég að loka augunum og biðja bænirnar mínar. Var hrædd. Myndi aldrei gera þetta af eigin frumkvæði. Öskraði mikið í einu tækinu. Úff. Borðuðum á Wagamama og allt var æði.
Dagur 3
Sitjum nú í lest til að fara til Fredericia. Þaðan til Vejle og þaðan til Billund. Já með allan farangurinn. Lentum í leiðinlegu atviki í lest nr 1 á København H. Við, prúðbúnir góðir ferðamenn með útprentaðan lestarmiða, með fyrirpöntuð sæti á silent zone / stille zone lentum í að fullur róni með dólg var í sætinu ská á móti. Þegar ég gaf honum enga athygli hrópaði hann á okkur og benti. Lestarkonan kom og sigraði hjartað mitt þegar hún sá hvað var í gangi og henti honum út, mínútu fyrir brottför. Hef elskað þessa konu síðan því barnið mitt var grátandi.
Allavega, tveimur lestum og einni rútu síðar vorum við lentar í Billund. Hótelið æði og fórum svo á Lalandia (himnaríki fyrir krakka) og fengum okkur kvöldmat. Á morgun er Legoland:)
Dagur 4
Legoland var frábært. Mikið að sjá og gera fyrir 11 ára krakka og mamman meikaði heila 5 klukkutíma af þessu:) Það sem stendur upp úr er fyrsta tækið sem var svona rússibani, vatnsrússibani þar sem enginn blotnaði nema ég og svo síðasta tækið en þá gat Guðrún Halla sérhannað hvernig við hreyfðumst fastar inn í tæknilegodóti. Þá hló ég. Fílaði The Lodge hótelið í Billund mest af öllum þessum þremur hótelum. Friðsælast. Fórum svo aftur á Lalandia og ég vann mini golfið. Er nú bara ágæt í því.
Dagur 5
Billund - Köben. Skildum Billund eftir grenjandi (af rigningu) og héldum aftur í mannfjöldann í Köben. Það er komið að mörkunum mínum hvað sensory overload varðar og ég þrái þögnina. Auðvitað er alltaf partylæti á kvöldin í miðborg stórborgar. Ætla núna að dreyma um kyrrð og náttúru. Góða nótt. Við fórum sem sagt á Ripley´s Believe it or not safnið. Þarna er allt sem er óvenjulegt. Óvenjulegt fólk, stórt fólk, lítið fólk og fólk sem gat (held að flest af þeim sé dáið) gert óvenjulega hluti. Á þessu safni var mikið um sterka ljóskastara og margs konar hávaða úr alls konar áttum og svo var sérstaklega eitt dæmi þar sem maður er staddur á brú, horfir á eitthvað sem snýst, svo fara veggirnir að snúast þannig að manni líður eins og brúin sveiflist en Guðrún Halla segir að það hafi ekki gerst. Allavegana, fékk einhvers konar sjóriðu og leið ekki vel eftir það. Löbbuðum samt um Strikið og fórum út að borða á sama stað og við fyrsta kvöldið. Mjög gott Cesars salat:)
Dagur 6
Tékkuðum okkur út af síðasta hótelinu sem okkur fannst einmitt síst. Afskaplega hljóðbært og teppið var shabby. Náðum að fara á Museum of illusion þar sem við skemmtum okkur vel í alls konar skrýtnum rýmum þar sem allt var öfugsnúið og skrýtið og gaman. Mæli með.
Allt í allt þá var alveg svona gaman í Danmörk
Namaste.
No comments:
Post a Comment