Friday, July 12, 2024

Bleach blonde

Það kemur sá dagur í lífi sumra táninga að þeim dettur í hug að aflita á sér hárið.

Fyrir mig var það einn dag veturinn 1993 - 1994 (minnir mig) að ég hafi labbað inn í Hvassó nýkomin af hárgreiðslustofunni með aflitað hárið. Man sérstaklega eftir einum skólabróður mínum (Sigfús) sem var miður sín yfir uppátækinu. 

Í gær í kringum kvöldmatarleytið var hér allt í hers höndum. Emilía var að aflita hárið á Stefáni inná baði inn fyrir Gothia cup og the shit hit the fan. Auðvitað varð hárið gult. Upp kom ringulreið og Emilía skaust út til að redda sérstakri hárnæringu fyrir svona tilfelli. Ég átti að bruna með og allt í einu varð ég bara rosa fegin að hann er að fara á Gothia cup. One down. 

Vikan var alls konar. Smá skellur að vera komin heim í heimilisstörfin og skyldurnar. Bless frelsi. 

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar kúnnarnir mínir voru mjög þakklátir fyrir vinnuna mína. Pöntuðu bæði næsta tíma og ég fékk faðmlög frá báðum. "Þetta var fullkomið" fékk ég að heyra. Ljúft.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar allt var hér á suðupunkti. Ég hafði tekið kjúlla úr frystinum um morguninn og var að myndast við kvöldmatinn, aðallega að passa að kjúllinn eldaðist þó hann væri smá frosinn ennþá þegar Stefán bað mig um að keyra eitthvert og ná í eitthvað. Hvæsti eitthvað á hann að ég hefði ekki tíma í það út af kvöldmatnum og fór svo bara í reiðilabbitúr. Þurfti að komast út. "En hárið á mér er gult."

Svo bara átti hann að vera mættur í bíó eftir 5 mín. Tímasetningarnar hjá þessum blessuðu unglingum. Þegar ég fór að sofa var hann nýkominn úr bíóinu og Emilía og hann voru að ræða um guluna og hárnæringuna góðu.

Annars er það að frétta að auk verkefnis vikunnar hef ég tekið upp á nýjum lið í hverri viku og það er að gera eitthvað félagslegt. Hitta fólk. Sjá aðra, sýna mig. Þannig að ég skráði mig í workshop í hot yoga hjá Lana Vogestad, sú sem ég kynntist hot yoga með. Hot!

Verkefni vikunnar var að skipta um barnabílstól í bílnum þar sem Styrmir er einfaldlega vaxinn upp úr stólnum sem ég fékk lánaðan hjá góðri nágrannakonu. Hann er með svona standi og base og ég kann ekki einu sinni að taka hann út úr bílnum. Man ekki einu sinni hvernig hann komst inn í bílinn..

Namaste. 

p.s. er mikið búin að hugsa um skammstöfunina GILF.

 

No comments: