Fæ mikið út úr því að henda.
Er búin að henda grimmt síðustu daga. Var að halda í eitthvað, einhverjar minningar, einhver brot af mér.
Er svo að átta mig á því að það sem er ég er að halda í er ekki lengur til.
Manneskjan breytist. Á hverjum degi vöknum við sem ný manneskja. Aðeins breytt viðhorf, lítum oggu poggu öðruvísi út.
Um er að ræða úrklippur úr tískutímaritum á borð við FACE og I-D sem ég hef haldið til haga í sirka 30 ár. Myndir sem ég var með upp á veggjum þegar ég var unglingur, þegar ég átti heima í Englandi í nokkra mánuði árið 1997 og á fleiri stöðum. Þótti þessar úrklippur mjög svalar. Þær hafa elst vel og mér finnst sumar þeirra mjög flottar ennþá í dag. En auðvitað eru módelin annað hvort dauð eða 27 - 30 árum eldri.
Allt er í heiminum hverfult. Við fáum nýjan líkama á 7 ára fresti og bless elsku fólk sem ég hef sett upp á stall allan þennan tíma. Þið hafið breyst, ég hef breyst. Ekkert er eins. Hlustaði á Gwen Stefani í gær í tilefni þess að ég var að henda fullt af gömlum myndum af henni. Hún lítur allt öðruvísi út núna. Sumir eru orðnir ljótir. Sumir eru ennþá svalir. Næstum.
Hér er brotabrot af því sem ég nú þegar búin að henda
Fannst þessi tímarit mjög svöl í den. Sé núna að þau voru ekkert rosalega heilbrigð. Þarna var auðvitað bara fallegt fólk og frægt fólk og liggur við hvatt til fíkniefnaneyslu. Síðasta myndin er throwback á blur vs. Oasis deiluna. Ég hlustaði grimmt á bæði böndin í níunni en hélt í hjarta mínu meira með blur.
Buygones.
Verkefni vikunnar var að skipta um sófaborð og ég gerði það á mánudaginn. Gaf það gamla sem var frá frænku sem ég veit ekki hver er. Nýja er úr Ikea og passar miklu betur við allt saman. Mjög ánægð.
Social vikunnar var að ég fór í Móa. Er gríðarlega samviskusöm kona og sá til þess að ég mætti í Yoga Nidra. Tikkaði glöð í social box vikunnar þegar ég var búin að heilsa og tala við þrjár manneskjur þar. Kvitt. Social vikunnar búið. Annars öfunda ég fólk sem er með stóra vinahópa og hittir þá reglulega. Það er svo sannarlega eitthvað.
Hápunktur vikunnar var þegar ég (við) fengum nýtt sófaborð á mánudaginn. Nýtt upphaf. Langar að endurnýja allt í stofunni núna.
Lágpunktur vikunnar var kannski í gær þegar ég kom þreytt heim úr vinnunni og nennti engu. Til allrar hamingju var Emilía hérna og sá um heimilisstörfin gegn vægri greiðslu.
Namaste.
No comments:
Post a Comment