Geri mér fullkomlega grein fyrir að meirihluti fólks tengir ekki við það að finna tunglið.
Það var óvenju sterkt fullt tungl á miðvikudaginn og ykkar kona fann svo sannarlega fyrir því. Líka dagana á undan þegar tunglið var að fyllast. Öll viðkvæm og The Highly Sensitive magnaðist bara og magnaðist. Eftir að hafa hlustað á Halldóru Geirharðs í podcastinu Á ég að hend´enni tala um að hugleiða inn á þriðja augað sé ég aðstæður og manneskjur of vel. Er jafnvel að spá í að hætta því. Samt ekki.
Verkefni vikunnar var að koma okkur heim frá Ítalíu í ágúst. Vorum að hringlast með þetta og loksins komst niðurstaða í málið sem var sú dýrasta. Ekkert mál, borgum mismuninn. Var að kaupa Icelandair flug frá Milano fyrir okkur fimm heim. Fimmta manneskjan er Emilía. Núna er bara að koma henni út sem er þá verkefni næstu viku.
Hápunktur vikunnar var eiginlega í gær. Mér leið vel um daginn og náði meira að segja að taka sæmilega mynd af mér í aðstöðunni fyrir noona appið. Emilía kom í nudd og við fengum okkur cacao saman og vorum að ræða málin. Góð samverustund.
Lágpuntur vikunnar var á þriðjudaginn þegar tunglið var að fyllast. Allt í einu hafði ég fullt að gera og var allt í einu að gera allt of mikið í eldhúsinu líka. Fann hræðilega myglu í grænmetisskúffunni. Var heillengi að laga það. Ákvað að baka sem var svo sem ágæt hugmynd en hef ekki einu sinni fengið mér það mikið af blessaða steinaldabrauðinu sem var það sem ég bakaði. Allavegana, er á engifer- og túrmerik safakúr sem er æði, fann strax góð áhrif svo ég ætlaði að gera meiri safa. Var allt í einu komin í tímaþröng og var því að flysja kræklótt engiferið með hníf sem var erfitt. Svo er nú bara eitthvað farið að hægja á verkhraðanum hjá mér.. Allavegana, skrikaði eitthvað handaverkið þar sem ég var farin að drífa mig og hnífurinn stakkst óvart í húðina fyrir neðan úlnliðinn. Ég fékk svo mikið sjokk að ég var heilan sólarhring að jafna mig. Það kom roði á svæðið en svo kom ekkert blóð. Það sem ég var þakklát. Allavegana, plástraði mig samt fjórum plástrum yfir svæðið (það var ekki til stór plástur) og fór svo að sinna fólkinu mínu. Sem er nú það eina sem ég geri alla daga launalaust (smá bitur.)
Já, svo stakk ég nál í konu á nálastungunámskeiðinu. Rosalegt.
Namaste.
No comments:
Post a Comment