Friday, February 28, 2025

Rise and fall

Gaman að átta sig á því á fimmtugsaldri að orkustigi okkar kvenna er að miklu leiti stjórnað af tíðahringnum okkar. Ég á daga þar sem ég geri allt sem þarf að gera búmm, búmm, búmm. Svo á ég daga þar sem allt er erfitt.

Allavega, sjáið hvað ég og skítarnir mínir skítlúkkuðum hjá Gilla Malla í RÚV á föstudagskvöldið.

Elska þessa mynd. Fann frelsið þetta kvöld. Mmmm hvað það er gott að vera með fólki sem manni líður vel með!

Verkefni vikunnar tengdist að miklu leyti Ítalíuferðinni góðu. Núna er ég búin að bóka gistingu fyrir okkur í Kaupmannahöfn en Emilía hangir enn í lausu lofti og er ekki enn komin til Ítalíu..

Hápunktur vikunnar var á þriðjudaginn þegar ég fór í afmæli til Siggúar vinkonu. Þetta var sameiginlegt afmæli fyrir börnin hennar sem urðu nýlega 10, 13 og 15 ára. Mér fannst geggjað að tengjast og tala við systkini hennar loksins eftir öll þessi ár og foreldra hennar líka.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var mjög illa sofin að reyna að komast í gegnum daginn.

P.s. mér finnst mjög leiðinlegt að vera orðin 46 ára. Þetta er bara svo mikið djók gamalt.

Namaste.

No comments: