Friday, February 7, 2025

Hvaða vika?

Undarlegt en mér líður bara eins og þessi vika hafi ekki verið mikil vika. 

Ætli það hafi ekki verið rauðu viðvaranirnar, starfsdagur í skólanum og allir heima dæmi. Voða mikil þannig vika. Í febrúar snýst þetta dáldið mikið um að taka hvern dag fyrir sig. Allavegana hjá mér. Gerði nú voða lítið annað en að fara á þetta námskeið á miðvikudaginn. Eins og mér líður núna er ég ofboðslega fegin að vera ekki í fastri atvinnu. Nuddaði ekkert, þessar rauðu viðvaranir voru einmitt á þeim dögum sem ég er með aðstöðuna. Er búin að vera mikið með Guðrúnu Höllu sem er tími sem er alltaf vel varinn. Akkerið mitt. Skráðum hana á handboltamót um helgina og er núna að súpa seyðið af því vegna þess að auðvitað byrjar hún að keppa kl 09:30 á laugardagsmorgni. Ég er ekki morgun manneskja. 

Verkefni vikunnar var að koma okkur heim frá Ítalíu í ágúst. Hingað til höfum við keypt tvær flugferðir; til Kaupmannahafnar og svo þaðan til Ítalíu. Núna erum við búin að nokkurn veginn fatta að okkur langar til að fara frá Mílanó beint flug heim. Göngum að öllum líkindum frá því um helgina. 

Hápunktur vikunnar var hingað til í gær þegar ég við Guðrún Halla fórum í Kringluna saman. Það er alltaf gott að vera með dóttur minni. 

Lágpunktur vikunnar var líka í gær þegar ég svaraði löngum spurningalista fyrir Virk og sendi inn. Við Svanur vorum að tala saman um daginn um einhvern sem hafði farið í Virk. Já, hún hefur bara verið að skrapa botninn sagði Svanur eða eitthvað álíka. Svanur. Ég er að fara í Virk. Ó, nú.. hehe

Elska að oft er lágpunktur vikunnar á sama degi og hápunkturinn. Á einhvern undarlegan hátt er það það sama. Allt litróf mannlegra tilfinninga. Bara tilfinningar og líðan af því að þú ert manneskja. Sem að finnur til. 

Namaste.

No comments: