Tuesday, February 24, 2015

24/2 2015

Jing jang dagur. Upp og niður. Ská og til hliðar.

Það allra besta við þennan dag var að ég fór til Jóa hnykk sem enn og aftur bjargaði lífi mínu með því að hnykkja og rétta af, juðast og laga.

Líður betur. Miklu betur. Var samt óþarflega dramatísk við vin minn í vinnunni, missti mig smá. Líður eins og fyrirtíðaspennan sé að koma aftur. Oh, the drag of being a woman.

Allavegana, þetta hitateppi sem ég gaf Svan í jólagjöf er mesta snilld ever. Dáldið kaldhæðið að ég nota hana bara en ekki hann. Ég sem hélt að þetta myndi alveg slá í gegn hjá honum...

Er svo að lesa bókina "Borða, biðja, elska" í annað sinn. Elska þessa bók. Þetta tvennt; hitateppið og bókin eru alveg málið fyrir örvæntingafullu húsmóðurina þessa dagana;


No comments: