Furðulegur dagur.
Svo þreytt. Fór í litun og plokkun í gær fyrir sólarlandaferðina og augun eru glær og rauð í dag. Mjög creepy svona ofan á þreytuna.
Harkaði vinnuna af mér. Er þakklát fyrir það skemmtilega fólk sem ég vinn með. Fékk meira að segja faðmlag frá einum þeirra. Allir hressir á föstudegi.
Vinnudagurinn var asnalegur eins og alla þessa viku. Var að hlaupa á undan og eftir klukkunni í meiri háttar stressi. Þetta getur verið svo undarleg vinna með þetta að gera. Maður þarf að vera á mörgum stöðum en skrifstofan tekur alla orkuna vegna funda. Funda á asnalegum tímum svo maður nær ekki að gera neitt mikið á þeim stöðum sem maður þyrfti að vera á.
Allavegana, þetta er búið að vera svo mikið dramatísk vika. Innri og ytri drama, búin að grenja í fullkominni hormónasprengju og væla út af ástarmálum. Átakavika í vinnunni, drama þar líka.
Fullkomlega búin á því á líkama og sál. Það var þorrablót eftir í vinnu í vinnunni í dag en sem betur fer gat enginn passað. Ég hafði varla orku í að ná í börnin. Það var meiri háttar átak að fara og ná í þau. Er svo búin að vera sófadýr síðan ég kom heim. Horfði á einn Suits þátt í frelsinu og leigði eina mynd; Gone girl, í leigunni. Hún var frekar furðuleg. Hefði ekki leigt hana ef Ben Affleck hefði ekki verið í henni. Get alltaf horft á hann;) Var svo löt að ég gerði það sem ég geri ALDREI; hringdi í Krua Tai og pantaði heimsendingu af mat. Hafði enga orku í eitthvað annað. Veit ekki einu sinni hvernig mér datt í hug að hringja þangað og veit ekki heldur hvernig ég vissi að þeir eru með heimsendingu. Jú, ég sá bíl hérna fyrir utan einhvern tímann...
Allavegana, get ekki beðið eftir svefninum. Hvíldinni. Guð er góður.
Komin í frí:):):):):):):)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment