Tuesday, February 3, 2015

3/2 2015

Buzy dagur.

var að hlaupa á undan klukkunni í allan dag og er enn. Er með svona 5 aðgerðarlista í gangi og alltaf kemur eitthvað upp á í vinnunni sem krefst þess að komast fram fyrir þessa to-do lista. Úff.

Ég var þreytt í dag. Bara drulluþreytt. Er alveg rosalega ánægð með mig að hafa samt farið á æfingu; í eróbikk tímann minn. Massaði tímann, þetta er oft svona þegar ég er þreytt. Þá er ég bara enn duglegri.

Þetta er svona þessa viku finnst mér, er að berja mig áfram og hef eiginlega ekki tíma til að hvíla mig. Það verður nóg af því í næstu viku:)

Mér er samt ennþá illt í rófubeininu og það tekur sig upp þegar maður hamast svona mikið eins og á æfingunni í hádeginu í dag. Er enn að skríða saman eftir meðgöngu GH, já eða þá að þetta er bara brotna rófubeinið mitt:/

Dúllulegastu setningu dagsins átti Óli minn: "Mamma. Ég og Jökull settumst niður í dag og vorum að tala um gamla tíma á leikskólanum." (Eins og hann sé eitthvað gamall. Pha!)

No comments: