Hhmm... veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um þennan dag. Engin stórvægileg átök en gat samt bara labbað hægt. Sem er ekkert frábært þegar maður er í vinnu. Skutlaði samt samstarfsfélaga á slysó og hún fór þaðan í gipsi svo maður ætti kannski ekkert að vera væla.
Bind vonir mínar við magnesíum duft sem ég keypti í apótekinu og maður setur í baðvatnið. Er ekki frá því að ég sé strax betri:)
Bað og skírn á morgun og jú, vinna líka smá...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment