Saturday, February 7, 2015

7/2 2015

Góður dagur.

Finn að mín mánaðarlega innri dramadrottning er að leggjast til hvíldar aftur. Sé þig í næsta mánuði. Hlakka til. Not!

Vann í listanum mínum yfir hluti til að gera fyrir ferðina. Gerði ekki alveg allt en það er allt í lagi. Æ shit. Er að reyna að vera skipulögð og forðast allt stress á morgun fyrir flugið. Geri mitt besta. Get ekki gert betur en það. Það er allavegana gott að vera rísa upp úr hinu mánaðarlega böli orkulega séð heldur en að vera að leggjast í það. Það er nú eitthvað til að vera þakklátur fyrir.

Fór í gott fjölskyldukaffiboð í dag þar sem við horfðum á slideshow heima hjá Svavari og Öbbu með gömlum og góðum fjölskyldumyndum. Oh, hvað afi og amma hafa verið hamingjusöm. Vildi að ég og Svanur værum meira þannig.

Allavegana, ég ætla að fara aftur í .... hvað get ég kallað það... áfallastjórnun. Ég hef haft einstakt lag á því að vera of sein í ferðalög og vera alltaf í einhverju djöfulsins stressi. Virðist ekki kunna að pakka. Panicka alltaf í endann og finnst ég þurfa að taka alla búslóðina með mér, bara svona ef ég þyrfti að nota eitthvað af því sem henni fylgir. Blómapottana liggur við;)

No comments: