Sunday, September 13, 2015

13/9 2015

Sit hérna í sófanum inn í stofu og öfunda barnlausa fertuga íslenska konu sem er í sjónvarpinu í þættinum hans Sindra Á uppleið.

Þessi kona vinnur fyrir Sameinuðu þjóðirnar og ferðast um allan heim að gera góða hluti. Núna býr hún sem sagt í New York og þjáist alveg örugglega ekki af blóðleysi og því sem gerist við konu þegar kona er búin að vera með börn undir fimm ára í rúm 13 ár....

Heppna, heppna kona.

Það eru "terrible two's" í gangi alla leið hjá henni Höllu minni núna og er búið að vera lengi. Það er svo erfitt að rökræða við tveggja ára barn og það er svo erfitt að þau trufla mann svona helst þegar maður má alls ekki við truflunum. 

Já, og borðaði heilan svona kassa.


1 comment:

Tinnsi said...

Það er vita vonlaust að ætla að rökræða við börn. ég er með allskonar sögur í gangi. Karíus og baktus nátturulega. Síðan geta flugur átt heima í flækjum í hárinu. Það líst Eddu mjög illa á.