Friday, March 3, 2023

Vaxtarverkir. Um sprengingar, börn og algert indifference

Bombs:

Að eigin mati finnst mér ég hafa vaxið í starfi. Á auðvelt með að slaka á fólki í nuddinu og oft sofna kúnnar hjá mér. Þá líður mér eins og sigurvegara.

Það breytir hins vegar ekki þeirri yfirvofandi staðreynd að miklar framkvæmdir eru í bígerð á Orkuhús-reitnum sem er alveg við hliðina á aðstöðunni minni. Fékk tölvupóst um að sprengingar hæfust í mars og stæðu fram yfir maí. Það er verið að fara búa til sirka 420 íbúðir með bílakjallara. Það þarf sem sagt að sprengja mikið niður.

Hvað ég á að gera veit ég ekki. Finn að hinir meðferðaraðilarnir eru uggandi og eru hugsandi um að fara á meðan á þessu stendur. Sumir jafnvel farnir.

Líður ekki vel með að vera auglýsa slakandi nudd á meðan á þessu stendur og finnst ég frekar máttlaus í málinu. Er ekki það máttugur heilari að geta slakað fólki niður í miðjum jarðskjálfta held ég.

Vaxtarverkir sem sagt.

Börn:

Í dag er síðasti dagurinn sem ég "á" barn undir 10 ára. Mér finnst það skrýtið og styðja frekar undir þessa vaxtaverki mína og er ég þá að tala um eigin öldrun. Alheimurinn er að skaffa mér öðru barni og gera mig að ömmu í staðinn. Ömmu!

Vaxtarverkir sem sagt.

Algert indifference:

Hluti af því að vera kynþroska manneskja er að upplifa sig aðlaðandi í augum þess kyns sem maður dregst að.

Á undan tímabilinu sem ég er að upplifa núna var langt tímabil þar sem mér leið dáldið eins og mjólkurfernu í kælinum í Samkaup með áherslu á Best fyrir dagsetninguna. Var að fara renna út eftir nokkra daga. Núna finnst mér ég vera runnin út og hef ekki fundið fyrir karlmannsaugum á mér í lengri tíma. 

Vaxtarverkir sem sagt.

Namaste indeed.

Yfirferð vikunnar:

Pain body: 20% (var á túr.)

Verkefni vikunnar: átta mig á Mími kennslunni. (Sýnist blessuð konan hafa sett það á mig að kenna sama hópnum um vélaræstingu sem var svo vandræðalegt af því að þau tvö sem mættu höfðu actually unnið við það í mörg ár (en ekki ég!))

Bók vikunnar: Ég fremur en þú eftir Jojo Moyes. Fimm stjörnur indeed.

                                                   

No comments: