Fékk þetta æðislega jólakort í póstinum í gær frá Tinnu vinkonu. Hún var hérna um jólin þannig að það barst eitthvað seint. Ég vona innilega að henni sé sama þó ég birti það hérna á blogginu. Tinna mín þú lætur mig bara vita. (Það vill svo til að hún er ein af fáum lesendum bloggsins.)
Ég er svo stolt og þakklát fyrir að eiga hana Tinnu sem vinkonu. Hún er svo mikill snillingur og það er alltaf eins og maður hitti hana síðast í gær þegar maður hittir hana. Þetta eru alltaf svo innihaldríkir hittingar. Hún býr yfir mikilli hugarró og ég hef aldrei séð hana skipta skapi. Alger demantur og gull.
Saturday, January 31, 2015
Friday, January 30, 2015
30/1 2015
Átti yndislegt kvöld með Ásdísi minni. Fórum út að borða á Kopar en ég fékk Óskaskrín í jólagjöf frá vinnunni: Gourmet þar sem maður getur valið veitingastað af lista til að fara út að borða á.
Það er eitthvað við mig og Ásdísi, við getum alltaf hlegið að þessu öllu saman. Það er æði. Svo gott að hlægja óstjórnlega:)
Vona að hún afsaki þessar myndbirtingar...

Thursday, January 29, 2015
29/1 2015
búin að vera það dugleg að hreinsa út úr fataskápnum það sem ég kemst ekki lengur í og er hætt að nota að núna er ég mjög rík af herðatrjám:)
Guðrún Halla er í svo góðum gír að hún vill kela við mig. Það er svo dætt. Kyssir mig með opinn munninn og knúsar með. Æði:)

Wednesday, January 28, 2015
28/1 2015
A creature of habit. Það er ég.
Skil eiginlega ekki hvaðan ég hef þetta en svona er ég bara. Núna er ég búin að taka upp á því að gera alltaf sömu rútínuna á morgnana í vinnunni (tala nú ekki um heima.) Byrja daginn á skrifstofunni þar sem ég spjalla við uppáhalds samstarfsfélaga minn alltaf á sama staðnum á sama tíma. Fæ mér te fyrst - sweet chilli spice yogi te. Legg upp daginn og geri það helsta í tölvunni. SVO fæ ég mér kaffibollann góða. Það er heilög stund.
Svo fer ég eitthvað út, fer alltaf í eróbikk í hádeginu á þri og fim. Ef ég fer út að skokka í staðinn fer ég sama hringinn með sömu tónlistina.
Rútínan eftir vinnu er líka alltaf mjög svipuð. Ég vil vera komin í rúmið svona 22:05. Þá gengur allt upp. Nenni engu rugli með það. Þá fer allt í rugl. Áður en ég fer í rúmið þarf ég að yfirfara. Athuga nokkrum sinnum hvort útidyrahurðin sé ekki læst, og svalahurðin.. hvort að ljósið í kæliherberginu sé ekki slökkt, hvort allt sé ekki slökkt inn í eldhúsi... og svo að sjálfsögðu slekk ég á dyrabjöllunni. Vil engin læti.
Er ég ekki skemmtileg?!
Liggur við að mig kvíði fyrir blessuðu utanlandsferðinni því þá þarf ég að vakna um miðja nótt - fari það í grábölvað.

Tuesday, January 27, 2015
27/1 2015
Sigríður Þórðardóttir..., þessi hérna kona:
lést núna í byrjun árs. Ég þekki þessa konu ekki neitt en þegar ég var í heimsókn hjá Binnu frænku í gær sýndi hún mér minningargreinina hennar. Sigríður var hálfsystir ömmu Svövu og átti bara heima rétt hjá henni. Þær voru samt í sáralitlu sambandi víst.
Ég veit ekkert svo mikið um forfeður mína. Binna er líka hálfsystir ömmu Svövu sem gerir mig ringlaða. Þórður átti Sigríði og Svövu með sitthvorri konunni og önnur þeirra var langamma Halla sem var algert gull. Ég bara þekki langömmu Höllu, ömmu Svövu og Binnu frænku en þessir Þórðar og Þorleifar eru mér hulin ráðgáta og öll sagan í kringum þá. Mamma á líka hálfsystur á Akureyri sem ég held að ég hafi hitt tvisvar. Það er allt líka mikil ráðgáta og ég veit ekkert um það. Svo finnst mér eins og við séum eitthvað tengd Einari Kárasyni rithöfundi, eða mömmu hans, og ég veit ekkert um það heldur.
Spurning hvort þetta hafi verið svona framhjáhöld og skilnaðir sem eru svo bara þaggaðir niður?
Nei, hvað veit maður?....

Monday, January 26, 2015
26/1 2015
Á uppleið.
Eitthvað svona heitir þátturinn með Sindra Sindrasyni sem er verið að sýna á miðvikudagskvöldum núna á stöð 2. Þarna er hann að taka viðtöl við ungar íslenskar konur sem eru að meika það í London. Þær eiga það sameiginlegt að gegna mikilvægum stöðum hver á sínu sviði og að ganga ofboðslega vel. Þær vinna mikið og eru með góð laun og það er voða mikil samkeppni í kringum þær. Þær eru sem sagt á uppleið.
Ég er búin að horfa á þá þætti sem komnir eru af því að auðvitað er maður spenntur fyrir þessum flottu konum sem gengur svona líka vel. En svo uppgötvaði ég stórmerkilegan hlut varðandi sjálfa mig.
Ég hef bara engan áhuga á þessu! Þær vinna minnst 10 tíma vinnudag og það eru alltaf einhverjir sem eru á höttunum eftir starfinu þeirra og vilja kannski að þér gangi illa. Ekki fyrir mig! Myndi heldur aldrei vilja búa í stórborg.
Vil miklu frekar lífið mitt heldur en lífið þeirra. Það er bara þannig.
En æðisleg uppgötvun!

Sunday, January 25, 2015
25/1 2015
Elsku pabbi minn sem ég elska og dái meir en þú veist.
Verð að segja þér dáldið. Mig langar ekki til að særa tilfinningar þínar og vona að þú takir þetta ekki mjög illa upp en málið varðar þetta hérna:
Þú keyptir þennan jakka fyrir Óla á sínum tíma þegar þú varst í útlöndum með mömmu. Málið er að við fílum hann ekki og ætlum að gefa hann, ég og Óli sko. Vona að þú sért ekki mjög móðgaður en við höfum bara ekki smekk fyrir honum.... sorry.
Langar líka til að biðjast afsökunar á því þegar þú, elsku pabbi, commentaðir hérna, og ég bað þig um að gera það ekki. Skammast mín þvílíkt mikið fyrir það. Held ég sé að fullorðnast fyrst núna og hafi bara verið asni að miklu leyti hvað þetta varðar og annað. Fyrirgefðu.
Fyrirgefðu líka fyrir að vera ekki einhver framakona. Mig bara langar það ekki. Langar að lifa en ekki svo mikið vinna af því að lífið er svo stutt og verðmætt. Sorry. Elska þig (hjarta)

Saturday, January 24, 2015
24/1 2015
Virkilega góður dagur:)
Tók til meira í fataskápnum, tók göngutúr í buxum sem ég ákvað síðan að gefa til Rauða krossins (elska þessa hreinsun:)) og svo fórum við í smá roadtrip til Bifröst að heimsækja Sólrúnu vinkonu sem er þar í námi í viðskiptafræði. Það var virkilega gaman að fara og kíkja á hana og stelpurnar hennar. Ég finn að þeim líður vel þarna:)
Í dag var það þannig að það var bæði the journey og the destination sem var málið. Við höfðum rosalega gott af því að komast aðeins út úr bænum (ég hugsaði það einmitt þegar ég fann fyrir menguninni í göngutúrnum í morgun hér í Hlíðunum) og svo er auðvitað alltaf gott og nærandi að hitta vini og styrkja vinabönd. Löbbuðum aðeins um svæðið og Sólrún sýndi okkur umhverfið.
Á heimleiðinni var brjálað veður undir Hafnarfjalli þegar við vorum komið fram hjá Borgarnesi og snarvitlaust á Kjalarnesinu. Það er búið að loka veginum þar núna víst og ef við hefðum verið hálftíma seinna á ferðinni hefðum við þurft að vera ég veit ekki einu sinni hvar! Phew!
Hér er mynd af okkur fyrir utan hjá Sólrúnu:
Bara nokkuð góður dagur:)

Friday, January 23, 2015
23/1 2015
Aldeilis fínn dagur.
Hélt áfram með það að prufa allt í fataskápnum og fór í hvítri skyrtu í vinnuna (ásamt öðru!) Fékk hrós og góðar athugasemdir frá þremur vinnufélögum sem mér þótti afar vænt um. Þau sögðu að hvítt færi mér mjög vel og að ég liti vel út í þessari skyrtu. EEEeee, ég held ég haldi henni! :)
Merkilegt hvað svona athugasemdir næra sjálfið.
Fór í litun og klippingu á Space sem tekur aukakrónukortið og spjallaði við homma um karlmenn. Það var gaman. Hann sagði mér að einn leikari sem ég er skotin í sé hommi. Ég varð svekkt. Ég átti varla til orð yfir hvað þetta kostaði mikið (17.500 kr.!) og hef aldrei lent í því áður að klipping og litun kostaði svona mikið. Eins gott að ég var með aukakrónukortið sem ég álít sem svo að sé alger gróði. Vona að ég hafi rétt fyrir mér..
Í tilefni bóndadagsins var karlpeningnum í vinnunni boðið í óvissuferð. Þeim var sagt að mæta með stuttbuxur kl. 10 og hitta okkur. Síðan var þeim samkvæmt gamalli hefð boðið að hoppa á einum fæti á stuttbuxunum smá hring fyrir framan húsið. Það var gaman og fyndið. Í laun fengu þeir brennivín og hákarl.
Gaman að þessu:)

Thursday, January 22, 2015
22/1 2015
Fínasti vinnudagur, allt smurt og fínt þar.
Laumaðist heim til að njóta þess að vera bara ein heima í smá stund áður en Svanur kemur með alla hersinguna. Það fer að skella á...
Emilía kom í gær og Óli er líka hérna þannig að núna erum við alveg sex. Það er dáldið mikið. Oftast er gott að fá Emilíu því hún er svo jákvæð og hjálpleg en stundum er það tilfinningalega erfitt að vera með barn sem vill frekar vera hjá mömmu sinni. Það er það sem mér finnst erfiðast. Þegar hún vill vera hjá mömmu sinni og saknar hennar og grætur. Af hverju má hún þá bara ekki vera þar? Ekki vil ég kvelja barnið....
Svanur er að hræða mig með því að mamma hans sé að koma suður. Maður veit aldrei hvað það þýðir.

Wednesday, January 21, 2015
21/1 2015
Fínasti dagur.
Góður vinnudagur og allt út um allt og allt of mikið í gangi hér heima eins og vanalega. 6 manna fjölskylda. Ruglið!
Namaste.

Tuesday, January 20, 2015
20/1 2015
Ágætis dagur.
Dáldið þokukenndur þökk sé dóttur sem vakti móður einhvern tímann í nótt með e-u umli og veseni. Svo fór hún að kalla á bróður sinn sem var nú bara dáldið dætt: "Óje, ÓJE?" Dúllusprengja...
Gerði nú ekkert mikið í vinnunni í dag vegna þess að það var foreldradagur í skólanum, þ.e.a.s. foreldraviðtöl hjá kennurunum og ekki kennsla. Gott að ég vann ekki svo mikið fyrir hádegi því svo þurfti ég að stökkva í kvöld í smá vesen sem var nú reyndar mér að kenna...
Það er allt í góðu hjá Óla en vesen hjá Stefáni Mána vegna þess að hann mætir svo oft seint. Hann er að falla á mætingu og málið komið til skólastjórans....
Allavegana, ljósið mitt á afmæli í dag. Orðin 13 ára og allt að gerast. Hann stækkar og stækkar, kominn í mútur og allt í gangi..
Hann er eiginlega það besta sem hefur komið fyrir mig. Það er bara þannig. Ég er mjög þakklát fyrir hvað hann er flottur. Kennarinn talaði um það í dag. Félagslegi þátturinn er í góðum málum og hann fellur einhvern veginn alls staðar inn. Svo flottur persónuleiki; opinn og góður.
Stolt móðir, það er ég:)
Dáldið þokukenndur þökk sé dóttur sem vakti móður einhvern tímann í nótt með e-u umli og veseni. Svo fór hún að kalla á bróður sinn sem var nú bara dáldið dætt: "Óje, ÓJE?" Dúllusprengja...
Gerði nú ekkert mikið í vinnunni í dag vegna þess að það var foreldradagur í skólanum, þ.e.a.s. foreldraviðtöl hjá kennurunum og ekki kennsla. Gott að ég vann ekki svo mikið fyrir hádegi því svo þurfti ég að stökkva í kvöld í smá vesen sem var nú reyndar mér að kenna...
Það er allt í góðu hjá Óla en vesen hjá Stefáni Mána vegna þess að hann mætir svo oft seint. Hann er að falla á mætingu og málið komið til skólastjórans....
Allavegana, ljósið mitt á afmæli í dag. Orðin 13 ára og allt að gerast. Hann stækkar og stækkar, kominn í mútur og allt í gangi..
Stolt móðir, það er ég:)
Monday, January 19, 2015
19/1 2015
Ágætis dagur.
Overdosaði af kaffi. Úff... Mjög undarlegt hvernig kaffið hefur áhrif á mig núna ef ég fæ mér of mikið af því. Fer alveg beint í miðtaugakerfið, finn það á öllum líkamanum, hugsun verður óskýr og bara frekar erfið og svo þegar ég lagðist upp í rúm eftir vinnu var ég gnístandi tönnum eins og ég veit ekki hvað. Díses!
Mér þykir bara sopinn svo góður....
Guðrún Halla var heima í dag með 39 stiga hita. Sem betur fer gat Svanur verið með henni. Phew..

Sunday, January 18, 2015
18/1 2015
Fínn dagur.
Lenti í smá óhappi með afmæliskökuna fyrir Óla. Gerði sömu kökuna og ég geri alltaf, bara vitlaust! Þannig að allt gærkvöldið fór í það. Eftir það varð þetta dáldið stress. Vaknaði snemma í morgun og gerði hana rétt; egg og sykur þeytt saman, svo blautefnin, svo bráðna smjörið og SVO þurrefnin. Góð Svava...
Náði að fara í Ashtanga Yoga líka sem var bara æði. Þetta er samt alltaf brjálað stress hérna heima fyrir þessar afmælisveislur. Bölva mér alltaf í sand og ösku fyrir að standa í þessu því að allt er á hvolfi og krakkarnir upp um alla veggi gerandi meira mess.
EN, alltaf hefst þetta að lokum:) Finnst samt eiginlega skemmtilegra að fara í boð en að halda boð. Það er bara þannig. Hér er mynd af afmælisstráknum sem verður 13 ára á þriðjudaginn:)
Elsku strákurinn minn orðinn svona stór!

Saturday, January 17, 2015
17/1 2015
Fínn dagur.
Byrjaði á zumba sem er alltaf hressandi og er svo búin að vera taka til heima og baka og versla inn fyrir kaffiboð á morgun í tilefni af afmæli Óla en hann verður 13 ára á þriðjudaginn.
Það leið næstum yfir mig í símtali við Siggú vinkonu en hún hringdi í mig af spítalanum. Hún lagðist þar inn í gær eftir að byrjaði að blæða hjá henni. Kom í ljós að eitthvað var eftir af fylgjunni í leginu með þessum afleiðingum að byrjaði að fossblæða. Mín kona fór í aðgerð í nótt, í svæfingu og alles og er að jafna sig núna en blóðþrýstingurinn féll voða mikið og hún er með saltvatn í æð. Úff..
Limpaðist bara niður og varð óglatt við að heyra raunir hennar. Það sama hefði getað gerst fyrir mig með Guðrúnu Höllu en gerði það sem betur fer ekki.
Jæja, the show must go on! Ætla að þrífa þessa blessuðu taustóla fyrir svefninn. Alltaf jafn flippuð...

Friday, January 16, 2015
16/1 2015
Góður dagur.
Var í miklu stuði í vinnunni í morgun og skammaði eldri samstarfsfélaga fyrir að snýta sér með hendinni út á stétt. Svona eins og fótboltamenn gera á vellinum og ógeðslegir menn í rennuna í sundi. Var í allt of þröngum og flegnum bol vegna þess að ég er taka til í skápnum. Held að niðurstaðan sé að halda honum. Hann fær að hanga í hangiskápnum en ég fer ekki í hann aftur fyrr en í sumar. Vinur minn í vinnunni sagði að hann væri svona kannski til að gefa yngri systur. .... maður er eitthvað eldri í dag en fyrir nokkrum árum;)
Hápunktur dagsins er hands down þegar við Svanur vorum búin að bíða 1 1/2 tíma hjá Sýslumanninum í Kópavogi með Guðrúnu Höllu til að fá vegabréf fyrir hana vegna þess að það var allt stappað af öðru fólki þarna. Þolinmóðin hennar GH þraut akkúrat þegar kom að því að taka myndina. Hún byrjaði þá að hágráta, heimtaði að vera með húfuna og var bara afmynduð vegna eigins öskurs. Það fór sem sagt allur þessi tími og öll þessi bið í ekki neitt!
Vei!

Thursday, January 15, 2015
15/1 2015
Æðislegur dagur. Er í miklu stuði í dag og allt gengur vel:)
Stefán Máni er reyndar veikur heima og bara í alvörunni veikur. Með rúmlega 39 stiga hita. Líst bara ekkert á hann.
Það gekk ekki svo vel með vagninn í gær. Það kom fólk að skoða hann og Svanur ætlaði bara að sjá um þetta og ég ætlaði ekki að segja orð en svo auðvitað þurfti ég að benda á bremsuna sem virkar ekki og blaðra eitthvað bull. Svanur ætti nú bara að kefla mig og læsa mig inni í herbergi á meðan hugsanlegir kaupendur er hérna:/
Allavegana, framundan í dag er bekkjarkvöld með bekknum hans Óla sem er núna komin í 7. bekk ótrúlegt en satt. Þetta er spilakvöld.
Úr einu í allt annað; fékk mér einn svona í gærkvöldi:
Þetta er engifersafi úr djúsvélinni sem Svanur gaf mér einhvern tíma. Allra meina bót.
Við erum alveg að gera upp á bak með mætinguna hans Stefáns Mána í skólann. Hann er að mæta of oft of seint. Ég sé um eftirmiðdagana þar sem ég sæki börnin í skólann og leikskólann og er oftast ein heima með krakkana langt fram á kvöld og Svanur sér um morgnana. Það munar öllu að þurfa að skutlast upp í Árbæjarskóla með Emilíu þegar hún er hérna þar sem hún á að vera mætt þar kl. 08:00. Þá kemur Stefán of seint í staðinn. Mikið ofboðslega er ég ósátt við það allt saman.
En ekki orð um það meir!

Wednesday, January 14, 2015
14/1 2015
Mega næs dagur.
Happy og sátt. Tíðindalaus dagur í vinnunni en mikið þykir mér vænt um að geta spjallað við vinnufélagana um allt á milli himins og jarðar. Það er þess vert að maður sé þakklátur fyrir það.
Er að taka til í fataskápnum og er ansi brutal í þeim efnum. Er að fara í föt sem ég fer aldrei í og svo annaðhvort henda þeim eða gefa, já eða eiga. Fór í bol í vinnuna í morgun sem er stutterma, hvítur og flegin og þröngur og leið bara alls ekki vel í honum. Brjóstin á mér voru út um allt og ég varð bara self consious einhvern veginn. Þegar ég fór heim í hádeginu henti ég honum. Það var ekkert smá gott. Veit ekki alveg af hverju en ég fæ svo mikið út úr því að henda. Oftast gef ég að sjálfsögðu svona fatnað en ég þurfti bara að henda þessum bol og mikið var það gott.
Var svo voða mikið að spá í hverju ég ætti að fara í vinnuna eftir hádegi og úr varð að ég fór í einhverju sem ég var sátt með og sátt í en svo kom í ljós að það var röng ákvörðun. Fór í allt of þunna blússu og var svo í slánni. Omg, mér er ennþá kalt og ég kom heim fyrir meira en hálftíma síðan:/ Er með hitapoka og læti og stefni á að fá mér engifersjúss í kvöld. Til öryggis.
Það er actually einhver að koma og skoða kerruvagninn í kvöld! Ætla að biðja Svan um að tala við fólkið þar sem ég er með þeim slakari þegar kemur að sölumennsku. Bendi beint á gallana og er svo voða hlessa þegar fólk vill ekki kaupa.

Tuesday, January 13, 2015
13/1 2015
Tough day at the office.
Hell-aður dagur í vinnunni. Reiður viðskiptavinur, algert klúður. My fault.
Sem betur fer var ég útsofin og vaknaði á undan klukkunni. Þvílíkt himnaríki! GH fékk enga mjólk í nótt. Lítið skref fyrir mannkynið, risastórt skref fyrir okkur!
Bið til almættisins að dagurinn á morgun verði ekki svona asnalegur og erfiður. Nei, það gerist nú varla tvo daga í röð...

Monday, January 12, 2015
12/1 2015
Góður dagur:)
Eru ekki allir dagar góðir þegar maður fær svefninn sinn? GH öskraði reyndar í u.þ.b. klukkutíma áður en hún sofnaði eitthvað eins og: NEI!!NEI!!NEI!!NEI!!NEEEIIII!!!NEI!NNEEEIII!! Úff.. Það er nú dáldið sætt að hún róast alltaf þegar við setjum eyrnahitamælinn í eyrun hennar. Þá liggur hún sultuslök og hreyfir sig ekki á meðan.
Vinnudagurinn var rólegur en ég hef á tilfinningunni að morgundagurinn verði bögg. Fór í hádeginu og heimsótti Siggú sem var að eignast sitt þriðja barn. Ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma hvað þau eru lítil þegar ... þau eru svona lítil. Náði þessari mynd af prinsessunni:
Voðalega sætt barn en eins og glöggir lesendur geta kannski lesið á milli línanna þá klingir ekki í neinum eggjastokkum hjá þessari (mér) úrvinda húsmóður. Ekki neinum.
Það er svo gott að líða vel. Ætla að beita öllum mínum ráðum til að GH sofi í nótt. Búin að kaupa þessa fínu eyrnaolíu í Jurtaapótekinu sem ég bind miklar vonir við. Ætla að láta hana fá þá tvisvar í eyrun fyrir svefninn, stíl bara til öryggis og svo ætla ég að passa að hún verði södd.
Góður dagur, prays the lord!

Sunday, January 11, 2015
11/1 2015
Sunnudagur..
Við virðumst ætla að halda út með það að Guðrún Halla er hætt með pela. Hún tók algert kast í gærkvöldi þegar hún átti að fara sofa og öskraði þangað til eitthvað um kl. 02:00. Stelpan hefur skap!!
Svanur heldur því fram að kastið hennar hafi ekkert haft með pelann að gera heldur eitthvað annað. Vona að hún sé ekki komin með í eyrun..
Þannig að nú verð ég aldrei með pelabarn aftur og aldrei með barn sem þarf AD dropa aftur en það er eins konar lýsi fyrir ungabörn. Núna kemur GH með krakkalýsið og vill fá sjúss:) Þannig að þetta er í raun tveir áfangar. Aldrei aftur með pelabarn og aldrei aftur með barn sem þarf AD dropa.
Mig langar rosalega til að komast í burtu. Það er svona retreat á Bali sem heitir "Empower women" held ég. Það eru tvær íslenskar konur með þetta og þetta er svona get-away fyrir konur til að efla þær. Held að ég hefði gott af þessu. Ég finn að ég hef ekki orku lengur í börnin og hef voða lítið að gefa þeim. Vinkona mín sem er nýskilin sagði að skilnaðurinn hefði verið góður að því leyti að núna hefur hún meira að gefa af sér fyrir börnin hennar þar sem hún fær alltaf vikufrí frá þeim aðra hverja viku. Það er sem sagt þannig að börnin eru alltaf í íbúðinni en mamman er heima með þeim aðra hverja viku og pabbinn hina vikuna. Núna eru þau bæði komin með nýja maka og eru heima hjá þeim vikuna sem þau eru í fríi frá börnunum. Win win situation.
Ég ætti kannski bara að skilja....

Saturday, January 10, 2015
10/1 2015
Ágætur dagur. Ég svaf í nótt:)
Maður þakkar almættinu fyrir litla greiða. Dreif mig í zumba í morgun sem var bara fínt. Hef nú samt oft verið hressari. Öskraði ekkert of mikið en hafði lúmskt gaman af að fylgjast með einni buddunni sem var alveg að lifa sig inn í þetta. Þetta Zumba er í Valsheimilinu og það er alveg fullt af fólki þarna. Rak svo augun í þessa ákveðnu konu sem sleppti sér alveg. Dáldið gaman að því, hef hana líka grunaða um að syngja (öskra) með í einu laginu, he he..
Þetta gæti hafa verið ákveðinn tímamótadagur. Held það en það gæti brugðist. Eftir að hafa talað við mömmu ákvað ég að henda pelunum hennar Guðrúnar Höllu. Hún á(tti) tvo sem voru orðnir frekar sjúskaðir. Hún sofnar alltaf með þá. Allavegana, nú er enginn peli lengur, það er að segja ef við höldum þetta út.
Ætla nú ekki að fagna almennilega að vera aldrei, ALDREI!, aftur með pelabarn fyrr en á morgun eða hinn. Mér er það mikil huggun allir þessir áfangar; aldei aftur þetta og hitt. Kem t.d. aldrei til með að þurfa vöggu eða leikgrind aftur. Vúhú!!
Mikið er ég ánægð að hafa farið í ófrjósemisaðgerðina. Ekki fleiri börn. Nei, ó nei!
Annars tók ég niður jólin í dag eða svoleiðis. Kom flestu jóladótinu niður í geymslu og afgangurinn fer á morgun. Fékk frí frá öllu bekkjarafmælisstússi fyrir Óla í dag sem var bara frábært. Gott að þurfa ekki að gera neitt í dag. Svanur fór með börnin í bíó meðan ég var heima með GH. Rölti svo
út í Samkaup að kaupa lottómiða. Maður má alltaf vona:)
Húha! Alltaf stuð hjá örvæntingafullu húsmóðurinni...

Friday, January 9, 2015
9/1 2015
Ekki góður dagur.
Var svo ofboðslega þreytt í dag að það náði engri átt. Ég náði engri átt. Bugaðist.
Allir fóru ferlega seint að sofa í gærkvöldi. Svanur fékk þessa frábæru hugmynd að bjóða krökkunum í ísbíltúr að ganga 22:00 og skóli daginn eftir. Hann ætlaði meira að segja aðeins að skúra íbúðina fyrst og ryksuga á undan! Þau komu svo heim vel vakandi og voru heillengi að sofna. Þeim Óla varð svo sundurorða svona u.þ.b. klukkutíma eftir að ég ætlaði að vera sofnuð.
Var svo tiltölulega nýsofnuð eða ég veit reyndar ekkert hvað klukkan var þegar Guðrún Halla byrjar að gráta aftur og gubbar svo út um allt rúm. Vaknaði svo nokkrum sinnum eftir það. Í kjölfarið átti ég mjög erfiðan dag af því mér var bókstaflega óglatt af þreytu.
Bugaðist svo og fór að grenja þegar ég fékk áhyggjufullt sms frá samstarfsfélaga - hvort það væri ekki allt í lagi. Sem betur fer var ég stödd upp í rúmi svo það var allt í lagi. Bugaðist svo aftur seinna um daginn. Var þá líka stödd upp í rúmi svo það var líka allt í lagi.
Þetta er bara ferlega mikið álag. Að vera með 1s árs gamalt barn sem sefur ekki og 6 manna flókna fjölskyldu. Langar eiginlega að vera bara allt annars staðar. Búin að vera með börnin öll sumur ein og undir 5 ára aldri barn í 13 ár núna. Þarf mömmufrí.
Þetta getur eiginlega ekki versnað en það er komin helgi sem hlýtur að þýða að það verður eitthvað um svefn.
Annars er ég að hlusta núna á alla cd-diskana mína sem er alveg ótrúlega áhugavert. Ég er að taka til í skápunum heima og þegar ég var að skoða skápinn minn fór ég að skoða gamlar ljósmyndir sem var rosalega áhugavert og gaman. Ákvað svo eftir að hafa tekið til í cd og dvd skápnum að hlusta bara á alla diskana mína. Taka þá með í bílinn þar sem ég er dáldið í bílnum í vinnunni og hlusta. Eins mikið og ég fílaði Eminem fannst mér diskurinn bara dáldið mikið dónalegur enda orðin gömul og leiðinleg kelling. Hlustaði svo á Jet Black Joe sem ég elskaði að gera. Hlustaði svo á Heru sem var ferlega angurvært. Ekki alveg málið að vera með fyrirtíðaspennu að hlusta á ástarlög í fullu tungli. Það er bara ávísun á tár. Svo það sem ég var að hlusta á í dag og í gær á ég eiginlega ekki orð yfir. Að ég skuli hafa getað hlustað á þetta techno drasl:/ Var næstum búin að henda öðrum svoleiðis disknum en ákvað að þetta væri ágæt heimild síðar. Díses..
Ætla að sofna í kvöld með von um betri dag á morgun. Og að Guðrún Halla fari að sofa á nóttunni.

Thursday, January 8, 2015
8/1 2015
Skítsæmilegur dagur. Ekkert meira. Ekkert minna.
Vaknaði útsofin sem var náttúrulega bara æðislegt. Allt gekk vel framan af þangað til að misskilningur kom í ljós í vinnunni. Starfsmaður sem ég er með og er nýr sagðist ekki ætla að taka svæði sem hún á að taka af því ég hafi ekki sagt henni frá því þegar hún byrjaði. Þetta svæði er einu sinni í viku, í dag, og ég fattaði þegar ég talaði við hana að hún hefði sem sagt ekkert verið að taka það og fólkið byrjaði að kvarta.
Fauk aðeins í mig og hana líka. Skilst samt á henni að hún ætli að taka það en það er búið að vera óþægilegt að vera ekki alveg með það á hreinu í dag. Svo mætti ég í World Class og ætlaði að fara í pallatímann minn en nei nei, kennarinn var veikur og þess vegna var þessi ákveðni afleysingakennari sem fer bara í taugarnar á mér. Maður svitnar ekki neitt og hún er bara með einhver helv.. dansspor sem enginn hefur áhuga á að ég held. Hún er svona latino og er að glenna sig og dansa allan tímann. Langaði mest til að labba út þegar ég sá hvernig í pottinn var búið en hún var orðin eitthvað súr af því að allir sneru við í dyrunum... svo ég var þarna í heilar 50 mínútur fyrir kurteisis sakir. Og borgandi fyrir þetta helv. Ekki alveg málið þessi tími.
Varð bara meira pirruð og einhvern veginn brjáluð inn í mér svo ég fór bara heim í slökun og hugleiðslu á æðislega hitateppinu sem ég gaf Svani í jólagjöf. Það náði að róa mig og allt varð gott aftur.
Talaði svo aftur við starfsmanninn sem sagði að spítalinn hefði verið að hringja út af manninum hennar sem liggur þar inni svo að henni myndi seinka aðeins. Skildist samt á henni á að hún ætli að taka þetta svæði. Svo er ég að fara hitta annan starfsmann út af öðrum skít. ....
Já, og svo blasti þetta við mér þegar ég keyrði heim:
Jólatréð frá því í gær komið út á götu. Fólk er fífl.
Þetta lýsir nú ekki svona almennt mínu lífsviðhorfi en stundum er dáldið gaman að vera pirraður eða þannig. Þetta er líka bara þannig dagur. Fokking janúar. Fokkinn myrkur. #hvarersúgula?
Mikið hlakka ég til að fara til Tenerife. Akkúrat mánuður núna:)

Wednesday, January 7, 2015
7/1 2015
hmmmm þessi dagur var mjög þokukenndur. Á ekkert eftir að muna eftir honum. Guðrún Halla öskraði þriðju nóttina í röð og fór ekki á leikskólann. Svanur var aftur heima mjög slappur bara. Sé svefninn góða í hyllingum og undirbý kvöldið þannig að ég komist í rúmið kl. 22:00. Er að klára allt núna.. Það er ekkert gott að vera drulluþreyttur alltaf. Sver það, man varla eftir deginum:/ Talaði við hitt foreldrateymið hans Óla. Það er verið að plana afmælið á laugardaginn. Nýjustu fréttir eru að Skemmtigarðurinn er út af því að Óli er meiddur. Skilst að þeir ætli að bjóða strákunum í bíó í staðinn á Horrible Bosses 2. Ég sá hana síðustu helgi og hún er ógeðslega dónaleg! Díses! Nenni ekki meiru drama með þetta afmæli samt...
Er dáldið pirruð út af þessum kerruvagni sem ég er að reyna að selja á bland.is. Varð ofboðslega glöð þegar ég loggaði mig inn áðan og sá að það voru ein skilaboð. Varð bara rosa spennt! Þá voru þetta bara skilaboð frá bland.is. Díses!
Svo er ég líka dáldið pirruð bara svona út af einhverju eins og þessu:
Hvað er að fólki?!

Tuesday, January 6, 2015
6/1 2015
Dagurinn var nú bara alveg ágætur.
Var næstum því búin að gleyma að Svanur á afmæli í dag en það reddaðist svona um hádegisbilið.. Phew!
Gerði nú ekki ýkja mikið í vinnunni í dag, aðallega svona skrifstofuvinnu.. Hitti starfsmann og fór svo í ræktina. Mikið ofboðslega var það nú gott þó að það hafi næstum því verið of mikið af því góða.. Gat bara varla andað í lok tímans.. en þetta eru pallatímar sem ég fer í núna í World Class. Það verður allt betra eftir ræktina, svooo gott að svitna:)
Ég var svo lukkuleg með að hafa sofið næstum því heila nótt að ég var heillengi að þakka almættinu fyrir það í morgun. Dáldið mikið skrýtið að Svanur og Guðrún Halla voru ekki í herberginu þegar ég vaknaði en þá voru þau sofandi í stofunni. Svanur var hundslappur og Guðrún Halla fór heldur ekki í leikskólann.
Ólafur Tryggvi er kominn í mútur og eins og tíminn hleypur stundum á undan manni þá er hann að fara að halda upp á 13 ára afmælið sitt næstu helgi! Díses... Og það í Skemmtigarðinum í Grafarvogi hvorki meira né minna. Það er sko ÚTI. Maður bara biður fyrir stillu....
Ætla nú að drífa mig í háttinn. 8 tíma samfelldur svefn er eitthvað sem er til. Ég veit það! Ég hef upplifað það.
Annars er svo gott að vita af Tenerife ferðinni í næsta mánuði í öllu þessu janúarmyrkri... MMMmmmmm:)

Monday, January 5, 2015
5/1 2015
Úff....
Stundum líður mér eins og það væri bara alveg nóg fyrir okkur Svan að vera bara með Guðrúnu Höllu. Stelpuskottið byrjaði að gubba upp úr kl. 23:00 í gærkvöldi akkúrat þegar ég var að sofna og hélt svo áfram að gubba og öskra í að því mér finnst í alla nótt.
Var alveg það þreytt í dag að það var erfitt að hugsa. Starði bara á tölvuskjáinn upp í vinnu og gat lítið gert. Gerði samt alveg fullt og reddaði nokkrum hlutum sem afar gott var að ég reddaði. Það er svo gott að hjálpa öðrum líka.
Allavegana, við Svanur skiptum með okkur deginum. Hann var heima með hana fyrir hádegi og ég eftir hádegi. Fór í Comma, og skipti hluta af því sem Svanur gaf mér í jólagjöf. Hélt að sjálfsögðu Óskaskríninu í dekur og dressinu sem hann gaf mér úr Comma, en skipti peysunni. Það er vinafólk hans (okkar) sem rekur þessa verslun og ég hitti eigandann, hana Hjördísi sem var auðvitað gaman. Það var svo líka extra gaman að ég fann æðislega smart hvíta blússu í staðinn fyrir peysuna. Gegt!
Nei sko, fann ég ekki mynd af Hilmari og Hjördísi þegar ég googlaði Comma verslun:) Þessi var tekin í opnuninni en þau eru nýbúin að opna þessa verslun í Smáralindinni á 2. hæð.
Allavegana, lufsaðist svo heima í fullkominni þreytu en var samt í vinnunni í tölvu og síma en var það þreytt að ég gleymdi iðullega hvað ég var að gera í tölvunni.. Ætli stelpuskottið fái ekki stíl til að hold kjæft í nótt;)
Reyndi eitthvað að halda áfram að reyna að selja kerruvagninn á Bland en það er ekkert búið að gerast. Ætli ég verði ekki að hafa fyrir því að Secreta þetta eins og Siggú vinkona segir alltaf.
Allavegana, yrði svo sátt við að fá fullan svefn í nótt. Svo sátt. Ætli ég secreti það bara ekki í leiðinni..

Sunday, January 4, 2015
4/1 2015
Frábær dagur. Gerði akkúrat það sem ég vildi mest gera sem var að hanga heima og gera mest lítið. Það er bara svo gott. Þetta er orðið að einhvers konar hefð hjá mér að fara helst ekki út úr húsi um helgar en gera svo allt sem þarf á virkum dögum.
Fór nú reyndar í hot yoga (90 mínútur) í World Class. Stundum finnst mér að við ættum öll að fá medalíur þegar tíminn er búinn þetta getur verið svo erfitt og átakanlegt og já, heitt! Fór að sortna smá fyrir augunum um svona miðjan tímann. Vöðvar að titra og svona. En það er svona gott vont. Maður er þá að fá eitthvað úr þessu..
Er svo eitthvað að bagsa við að reyna að selja Basson vagninn sem ég keypti á Bland á Bland. Keypti hann gallaðan án þess að vita það og hafði svo bara ekki orku í að rífast eitthvað í konunni sem seldi mér hann. Hann fór á beint á verkstæði út af einhverju og svo bara virkar ekki bremsan! Keypti hann á svona 75.000 kr og setti á hann 50.000 kr núna á Blandinu. Samt voða asnalegt að vera selja bremslulausan vagn. Hann virkaði samt alveg þegar ég var að nota hann og ég bara vandist þessu.
Anyways, ætti nú aldeilis að vera búin að hlaða batteríin yfir helgina. Barasta heil vinnuvika framundan. Mikið er það skrýtið eftir öll þessi frí..

Saturday, January 3, 2015
3/1 2015
Mmmm 3. dagur ársins að verða búinn.
Home sweet home að þessu sinni. Stundum er það bara það allra besta. Verð reyndar að viðurkenna að mig langar á skíði en vona að morgundagurinn bjóði upp á það.
Það sem ég afrekaði svona helst í dag í heimilisstörfunum var að koma þessari hrúgu af sokkum:
(hey, þarna sést í bumbuna á mér... oh, þessi kviðfita...) ... í þessa hrúgu af sokkum:
ta dara! Svona getur maður verið duglegur:)
Unglingurinn minn er líklegast tölvusjúklingur sem notar skó númer 42. Miðjan er búin að vera í rosalega löngu fríi, gott að skólinn byrjar á mánudaginn. Guðrún Halla skottast hérna um og dúllast, falleg þessi elska:)

Friday, January 2, 2015
2/1 2015
Jæja, þá er dagur 2 að kvöldi kominn. Þetta var nú bara ágætis dagur.
Þetta var nú líka hálf asnalegur dagur sem kom á milli tveggja daga fría. Fyrst gamlársdagur, svo nýársdagur, svo þessi föstudagur og svo aftur komin helgi. Allavegana, knúsaði nokkra gleðilegt nýtt ár í vinnunni og gerði ekkert rosalega mikið en reddaði samt hlutum sem mér þykir dáldið gaman.
Var aftur löt í dag aftur en fór nú samt í ræktina og var bara nokkuð roggin með að hafa afrekað það í þreytunni. Eldaði soðna ýsu með kartöflum og smjéri fyrir fjölskylduna og fór svo í bíó með Önnu Láru vinkonu sem var að koma úr þriggja vikna ferðalagi til Ítalíu með móður sinni og syni.
Við sáum Horrible bosses 2 sem var bara mjög góð. Hlógum hæst held ég bara. Grét úr hlátri í eitt skiptið. Virkilega góð gamanmynd:)
Leggst nú til hvílu og hlakka til dags númer 3 á nýju ári.

Thursday, January 1, 2015
1/1 2015
Gleðilegt nýtt ár!
Vei:) Alveg glænýtt ár fullt af möguleikum og fyrirheitum.
Vorum í hinu árlega áramótafjölskyldupartýi í gærkvöld sem var náttúrulega bara æðislegt af því að við erum svo frábær. Fórum því öll seint að sofa og sváfum þess vegna lengi frameftir. Fyrsti dagur ársins er því líklegast mesti letidagur ársins. Lá í leti í allan dag. Nennti ekki neinu. Fór reyndar í göngutúr sem er alltaf gott mál.
Kláraði bókina Harmur englanna eftir Jón Kalman (einhvers)son. Var lengi með þessa bók en fannst hún bara fín. Grenjaði nokkrum sinnum og fékk störuna af því að hún fjallar svo mikið um ástina. Gef henni því mína bestu einkunn. Það er líka eitthvað við gamla daga þegar allt var sem erfitt sem heillar. Get ekki alveg skýrt út af hverju en að það er einhver rómantík í fortíðinni.
Allavegana, það eina sem ég afrekaði í dag var að þrífa rúmið hennar Guðrúnar Höllu hátt og lágt og skipta á því. Setti nýju rúmfötin sem hún fékk í jólagjöf frá okkur á rúmið. Sjáðið bara:
Hér stendur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Svona getur Rúmfatalagerinn verið æðislegur.
Hver veit nema að ég bloggi á morgun líka. Síðar...:)

Subscribe to:
Posts (Atom)