Thursday, January 15, 2015

15/1 2015

Æðislegur dagur. Er í miklu stuði í dag og allt gengur vel:)

Stefán Máni er reyndar veikur heima og bara í alvörunni veikur. Með rúmlega 39 stiga hita. Líst bara ekkert á hann.

Það gekk ekki svo vel með vagninn í gær. Það kom fólk að skoða hann og Svanur ætlaði bara að sjá um þetta og ég ætlaði ekki að segja orð en svo auðvitað þurfti ég að benda á bremsuna sem virkar ekki og blaðra eitthvað bull. Svanur ætti nú bara að kefla mig og læsa mig inni í herbergi á meðan hugsanlegir kaupendur er hérna:/

Allavegana, framundan í dag er bekkjarkvöld með bekknum hans Óla sem er núna komin í 7. bekk ótrúlegt en satt. Þetta er spilakvöld.

Úr einu í allt annað; fékk mér einn svona í gærkvöldi:

Þetta er engifersafi úr djúsvélinni sem Svanur gaf mér einhvern tíma. Allra meina bót.

Við erum alveg að gera upp á bak með mætinguna hans Stefáns Mána í skólann. Hann er að mæta of oft of seint. Ég sé um eftirmiðdagana þar sem ég sæki börnin í skólann og leikskólann og er oftast ein heima með krakkana langt fram á kvöld og Svanur sér um morgnana. Það munar öllu að þurfa að skutlast upp í Árbæjarskóla með Emilíu þegar hún er hérna þar sem hún á að vera mætt þar kl. 08:00. Þá kemur Stefán of seint í staðinn. Mikið ofboðslega er ég ósátt við það allt saman.

En ekki orð um það meir!

No comments: