Elsku pabbi minn sem ég elska og dái meir en þú veist.
Verð að segja þér dáldið. Mig langar ekki til að særa tilfinningar þínar og vona að þú takir þetta ekki mjög illa upp en málið varðar þetta hérna:
Þú keyptir þennan jakka fyrir Óla á sínum tíma þegar þú varst í útlöndum með mömmu. Málið er að við fílum hann ekki og ætlum að gefa hann, ég og Óli sko. Vona að þú sért ekki mjög móðgaður en við höfum bara ekki smekk fyrir honum.... sorry.
Langar líka til að biðjast afsökunar á því þegar þú, elsku pabbi, commentaðir hérna, og ég bað þig um að gera það ekki. Skammast mín þvílíkt mikið fyrir það. Held ég sé að fullorðnast fyrst núna og hafi bara verið asni að miklu leyti hvað þetta varðar og annað. Fyrirgefðu.
Fyrirgefðu líka fyrir að vera ekki einhver framakona. Mig bara langar það ekki. Langar að lifa en ekki svo mikið vinna af því að lífið er svo stutt og verðmætt. Sorry. Elska þig (hjarta)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment