Friday, January 16, 2015

16/1 2015

Góður dagur.

Var í miklu stuði í vinnunni í morgun og skammaði eldri samstarfsfélaga fyrir að snýta sér með hendinni út á stétt. Svona eins og fótboltamenn gera á vellinum og ógeðslegir menn í rennuna í sundi. Var í allt of þröngum og flegnum bol vegna þess að ég er taka til í skápnum. Held að niðurstaðan sé að halda honum. Hann fær að hanga í hangiskápnum en ég fer ekki í hann aftur fyrr en í sumar. Vinur minn í vinnunni sagði að hann væri svona kannski til að gefa yngri systur. .... maður er eitthvað eldri í dag en fyrir nokkrum árum;)

Hápunktur dagsins er hands down þegar við Svanur vorum búin að bíða 1 1/2 tíma hjá Sýslumanninum í Kópavogi með Guðrúnu Höllu til að fá vegabréf fyrir hana vegna þess að það var allt stappað af öðru fólki þarna. Þolinmóðin hennar GH þraut akkúrat þegar kom að því að taka myndina. Hún byrjaði þá að hágráta, heimtaði að vera með húfuna og var bara afmynduð vegna eigins öskurs.  Það fór sem sagt allur þessi tími og öll þessi bið í ekki neitt!

Vei!

No comments: