Góður dagur:)
Eru ekki allir dagar góðir þegar maður fær svefninn sinn? GH öskraði reyndar í u.þ.b. klukkutíma áður en hún sofnaði eitthvað eins og: NEI!!NEI!!NEI!!NEI!!NEEEIIII!!!NEI!NNEEEIII!! Úff.. Það er nú dáldið sætt að hún róast alltaf þegar við setjum eyrnahitamælinn í eyrun hennar. Þá liggur hún sultuslök og hreyfir sig ekki á meðan.
Vinnudagurinn var rólegur en ég hef á tilfinningunni að morgundagurinn verði bögg. Fór í hádeginu og heimsótti Siggú sem var að eignast sitt þriðja barn. Ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma hvað þau eru lítil þegar ... þau eru svona lítil. Náði þessari mynd af prinsessunni:
Voðalega sætt barn en eins og glöggir lesendur geta kannski lesið á milli línanna þá klingir ekki í neinum eggjastokkum hjá þessari (mér) úrvinda húsmóður. Ekki neinum.
Það er svo gott að líða vel. Ætla að beita öllum mínum ráðum til að GH sofi í nótt. Búin að kaupa þessa fínu eyrnaolíu í Jurtaapótekinu sem ég bind miklar vonir við. Ætla að láta hana fá þá tvisvar í eyrun fyrir svefninn, stíl bara til öryggis og svo ætla ég að passa að hún verði södd.
Góður dagur, prays the lord!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment