Úff....
Stundum líður mér eins og það væri bara alveg nóg fyrir okkur Svan að vera bara með Guðrúnu Höllu. Stelpuskottið byrjaði að gubba upp úr kl. 23:00 í gærkvöldi akkúrat þegar ég var að sofna og hélt svo áfram að gubba og öskra í að því mér finnst í alla nótt.
Var alveg það þreytt í dag að það var erfitt að hugsa. Starði bara á tölvuskjáinn upp í vinnu og gat lítið gert. Gerði samt alveg fullt og reddaði nokkrum hlutum sem afar gott var að ég reddaði. Það er svo gott að hjálpa öðrum líka.
Allavegana, við Svanur skiptum með okkur deginum. Hann var heima með hana fyrir hádegi og ég eftir hádegi. Fór í Comma, og skipti hluta af því sem Svanur gaf mér í jólagjöf. Hélt að sjálfsögðu Óskaskríninu í dekur og dressinu sem hann gaf mér úr Comma, en skipti peysunni. Það er vinafólk hans (okkar) sem rekur þessa verslun og ég hitti eigandann, hana Hjördísi sem var auðvitað gaman. Það var svo líka extra gaman að ég fann æðislega smart hvíta blússu í staðinn fyrir peysuna. Gegt!
Nei sko, fann ég ekki mynd af Hilmari og Hjördísi þegar ég googlaði Comma verslun:) Þessi var tekin í opnuninni en þau eru nýbúin að opna þessa verslun í Smáralindinni á 2. hæð.
Allavegana, lufsaðist svo heima í fullkominni þreytu en var samt í vinnunni í tölvu og síma en var það þreytt að ég gleymdi iðullega hvað ég var að gera í tölvunni.. Ætli stelpuskottið fái ekki stíl til að hold kjæft í nótt;)
Reyndi eitthvað að halda áfram að reyna að selja kerruvagninn á Bland en það er ekkert búið að gerast. Ætli ég verði ekki að hafa fyrir því að Secreta þetta eins og Siggú vinkona segir alltaf.
Allavegana, yrði svo sátt við að fá fullan svefn í nótt. Svo sátt. Ætli ég secreti það bara ekki í leiðinni..
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment