Thursday, January 22, 2015

22/1 2015

Fínasti vinnudagur, allt smurt og fínt þar.

Laumaðist heim til að njóta þess að vera bara ein heima í smá stund áður en Svanur kemur með alla hersinguna. Það fer að skella á...

Emilía kom í gær og Óli er líka hérna þannig að núna erum við alveg sex. Það er dáldið mikið. Oftast er gott að fá Emilíu því hún er svo jákvæð og hjálpleg en stundum er það tilfinningalega erfitt að vera með barn sem vill frekar vera hjá mömmu sinni. Það er það sem mér finnst erfiðast. Þegar hún vill vera hjá mömmu sinni og saknar hennar og grætur. Af hverju má hún þá bara ekki vera þar? Ekki vil ég kvelja barnið....

Svanur er að hræða mig með því að mamma hans sé að koma suður. Maður veit aldrei hvað það þýðir.

No comments: