Á uppleið.
Eitthvað svona heitir þátturinn með Sindra Sindrasyni sem er verið að sýna á miðvikudagskvöldum núna á stöð 2. Þarna er hann að taka viðtöl við ungar íslenskar konur sem eru að meika það í London. Þær eiga það sameiginlegt að gegna mikilvægum stöðum hver á sínu sviði og að ganga ofboðslega vel. Þær vinna mikið og eru með góð laun og það er voða mikil samkeppni í kringum þær. Þær eru sem sagt á uppleið.
Ég er búin að horfa á þá þætti sem komnir eru af því að auðvitað er maður spenntur fyrir þessum flottu konum sem gengur svona líka vel. En svo uppgötvaði ég stórmerkilegan hlut varðandi sjálfa mig.
Ég hef bara engan áhuga á þessu! Þær vinna minnst 10 tíma vinnudag og það eru alltaf einhverjir sem eru á höttunum eftir starfinu þeirra og vilja kannski að þér gangi illa. Ekki fyrir mig! Myndi heldur aldrei vilja búa í stórborg.
Vil miklu frekar lífið mitt heldur en lífið þeirra. Það er bara þannig.
En æðisleg uppgötvun!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment