Friday, January 9, 2015

9/1 2015

Ekki góður dagur.

Var svo ofboðslega þreytt í dag að það náði engri átt. Ég náði engri átt. Bugaðist.

Allir fóru ferlega seint að sofa í gærkvöldi. Svanur fékk þessa frábæru hugmynd að bjóða krökkunum í ísbíltúr að ganga 22:00 og skóli daginn eftir. Hann ætlaði meira að segja aðeins að skúra íbúðina fyrst og ryksuga á undan! Þau komu svo heim vel vakandi og voru heillengi að sofna. Þeim Óla varð svo sundurorða svona u.þ.b. klukkutíma eftir að ég ætlaði að vera sofnuð.

Var svo tiltölulega nýsofnuð eða ég veit reyndar ekkert hvað klukkan var þegar Guðrún Halla byrjar að gráta aftur og gubbar svo út um allt rúm. Vaknaði svo nokkrum sinnum eftir það. Í kjölfarið átti ég mjög erfiðan dag af því mér var bókstaflega óglatt af þreytu.

Bugaðist svo og fór að grenja þegar ég fékk áhyggjufullt sms frá samstarfsfélaga - hvort það væri ekki allt í lagi. Sem betur fer var ég stödd upp í rúmi svo það var allt í lagi. Bugaðist svo aftur seinna um daginn. Var þá líka stödd upp í rúmi svo það var líka allt í lagi.

Þetta er bara ferlega mikið álag. Að vera með 1s árs gamalt barn sem sefur ekki og 6 manna flókna fjölskyldu. Langar eiginlega að vera bara allt annars staðar. Búin að vera með börnin öll sumur ein og undir 5 ára aldri barn í 13 ár núna. Þarf mömmufrí.

Þetta getur eiginlega ekki versnað en það er komin helgi sem hlýtur að þýða að það verður eitthvað um svefn.

Annars er ég að hlusta núna á alla cd-diskana mína sem er alveg ótrúlega áhugavert. Ég er að taka til í skápunum heima og þegar ég var að skoða skápinn minn fór ég að skoða gamlar ljósmyndir sem var rosalega áhugavert og gaman. Ákvað svo eftir að hafa tekið til í cd og dvd skápnum að hlusta bara á alla diskana mína. Taka þá með í bílinn þar sem ég er dáldið í bílnum í vinnunni og hlusta. Eins mikið og ég fílaði Eminem fannst mér diskurinn bara dáldið mikið dónalegur enda orðin gömul og leiðinleg kelling. Hlustaði svo á Jet Black Joe sem ég elskaði að gera. Hlustaði svo á Heru sem var ferlega angurvært. Ekki alveg málið að vera með fyrirtíðaspennu að hlusta á ástarlög í fullu tungli. Það er bara ávísun á tár. Svo það sem ég var að hlusta á í dag og í gær á ég eiginlega ekki orð yfir. Að ég skuli hafa getað hlustað á þetta techno drasl:/ Var næstum búin að henda öðrum svoleiðis disknum en ákvað að þetta væri ágæt heimild síðar. Díses..

Ætla að sofna í kvöld með von um betri dag á morgun. Og að Guðrún Halla fari að sofa á nóttunni.

No comments: