Fékk þetta æðislega jólakort í póstinum í gær frá Tinnu vinkonu. Hún var hérna um jólin þannig að það barst eitthvað seint. Ég vona innilega að henni sé sama þó ég birti það hérna á blogginu. Tinna mín þú lætur mig bara vita. (Það vill svo til að hún er ein af fáum lesendum bloggsins.)
Ég er svo stolt og þakklát fyrir að eiga hana Tinnu sem vinkonu. Hún er svo mikill snillingur og það er alltaf eins og maður hitti hana síðast í gær þegar maður hittir hana. Þetta eru alltaf svo innihaldríkir hittingar. Hún býr yfir mikilli hugarró og ég hef aldrei séð hana skipta skapi. Alger demantur og gull.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ha ha! Allt í góðu Svava mín. Fyndið að sjá kortið mitt á netinu en bara gaman. Takk fyrir þessi fallegu orð í minn garð. Hafið það sem allra best í sólinni.
Post a Comment