Sunday, January 18, 2015

18/1 2015

Fínn dagur.

Lenti í smá óhappi með afmæliskökuna fyrir Óla. Gerði sömu kökuna og ég geri alltaf, bara vitlaust! Þannig að allt gærkvöldið fór í það. Eftir það varð þetta dáldið stress. Vaknaði snemma í morgun og gerði hana rétt; egg og sykur þeytt saman, svo blautefnin, svo bráðna smjörið og SVO þurrefnin. Góð Svava...

Náði að fara í Ashtanga Yoga líka sem var bara æði. Þetta er samt alltaf brjálað stress hérna heima fyrir þessar afmælisveislur. Bölva mér alltaf í sand og ösku fyrir að standa í þessu því að allt er á hvolfi og krakkarnir upp um alla veggi gerandi meira mess.

EN, alltaf hefst þetta að lokum:) Finnst samt eiginlega skemmtilegra að fara í boð en að halda boð. Það er bara þannig. Hér er mynd af afmælisstráknum sem verður 13 ára á þriðjudaginn:)

Elsku strákurinn minn orðinn svona stór!

No comments: