Sigríður Þórðardóttir..., þessi hérna kona:
lést núna í byrjun árs. Ég þekki þessa konu ekki neitt en þegar ég var í heimsókn hjá Binnu frænku í gær sýndi hún mér minningargreinina hennar. Sigríður var hálfsystir ömmu Svövu og átti bara heima rétt hjá henni. Þær voru samt í sáralitlu sambandi víst.
Ég veit ekkert svo mikið um forfeður mína. Binna er líka hálfsystir ömmu Svövu sem gerir mig ringlaða. Þórður átti Sigríði og Svövu með sitthvorri konunni og önnur þeirra var langamma Halla sem var algert gull. Ég bara þekki langömmu Höllu, ömmu Svövu og Binnu frænku en þessir Þórðar og Þorleifar eru mér hulin ráðgáta og öll sagan í kringum þá. Mamma á líka hálfsystur á Akureyri sem ég held að ég hafi hitt tvisvar. Það er allt líka mikil ráðgáta og ég veit ekkert um það. Svo finnst mér eins og við séum eitthvað tengd Einari Kárasyni rithöfundi, eða mömmu hans, og ég veit ekkert um það heldur.
Spurning hvort þetta hafi verið svona framhjáhöld og skilnaðir sem eru svo bara þaggaðir niður?
Nei, hvað veit maður?....
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment