Mega næs dagur.
Happy og sátt. Tíðindalaus dagur í vinnunni en mikið þykir mér vænt um að geta spjallað við vinnufélagana um allt á milli himins og jarðar. Það er þess vert að maður sé þakklátur fyrir það.
Er að taka til í fataskápnum og er ansi brutal í þeim efnum. Er að fara í föt sem ég fer aldrei í og svo annaðhvort henda þeim eða gefa, já eða eiga. Fór í bol í vinnuna í morgun sem er stutterma, hvítur og flegin og þröngur og leið bara alls ekki vel í honum. Brjóstin á mér voru út um allt og ég varð bara self consious einhvern veginn. Þegar ég fór heim í hádeginu henti ég honum. Það var ekkert smá gott. Veit ekki alveg af hverju en ég fæ svo mikið út úr því að henda. Oftast gef ég að sjálfsögðu svona fatnað en ég þurfti bara að henda þessum bol og mikið var það gott.
Var svo voða mikið að spá í hverju ég ætti að fara í vinnuna eftir hádegi og úr varð að ég fór í einhverju sem ég var sátt með og sátt í en svo kom í ljós að það var röng ákvörðun. Fór í allt of þunna blússu og var svo í slánni. Omg, mér er ennþá kalt og ég kom heim fyrir meira en hálftíma síðan:/ Er með hitapoka og læti og stefni á að fá mér engifersjúss í kvöld. Til öryggis.
Það er actually einhver að koma og skoða kerruvagninn í kvöld! Ætla að biðja Svan um að tala við fólkið þar sem ég er með þeim slakari þegar kemur að sölumennsku. Bendi beint á gallana og er svo voða hlessa þegar fólk vill ekki kaupa.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment