Wednesday, January 28, 2015

28/1 2015

A creature of habit. Það er ég.

Skil eiginlega ekki hvaðan ég hef þetta en svona er ég bara. Núna er ég búin að taka upp á því að gera alltaf sömu rútínuna á morgnana í vinnunni (tala nú ekki um heima.) Byrja daginn á skrifstofunni þar sem ég spjalla við uppáhalds samstarfsfélaga minn alltaf á sama staðnum á sama tíma. Fæ mér te fyrst - sweet chilli spice yogi te. Legg upp daginn og geri það helsta í tölvunni. SVO fæ ég mér kaffibollann góða. Það er heilög stund.

Svo fer ég eitthvað út, fer alltaf í eróbikk í hádeginu á þri og fim. Ef ég fer út að skokka í staðinn fer ég sama hringinn með sömu tónlistina.

Rútínan eftir vinnu er líka alltaf mjög svipuð. Ég vil vera komin í rúmið svona 22:05. Þá gengur allt upp. Nenni engu rugli með það. Þá fer allt í rugl. Áður en ég fer í rúmið þarf ég að yfirfara. Athuga nokkrum sinnum hvort útidyrahurðin sé ekki læst, og svalahurðin.. hvort að ljósið í kæliherberginu sé ekki slökkt, hvort allt sé ekki slökkt inn í eldhúsi... og svo að sjálfsögðu slekk ég á dyrabjöllunni. Vil engin læti.

Er ég ekki skemmtileg?!

Liggur við að mig kvíði fyrir blessuðu utanlandsferðinni því þá þarf ég að vakna um miðja nótt - fari það í grábölvað.


No comments: