Sunday, January 11, 2015

11/1 2015

Sunnudagur..

Við virðumst ætla að halda út með það að Guðrún Halla er hætt með pela. Hún tók algert kast í gærkvöldi þegar hún átti að fara sofa og öskraði þangað til eitthvað um kl. 02:00. Stelpan hefur skap!!

Svanur heldur því fram að kastið hennar hafi ekkert haft með pelann að gera heldur eitthvað annað. Vona að hún sé ekki komin með í eyrun..

Þannig að nú verð ég aldrei með pelabarn aftur og aldrei með barn sem þarf AD dropa aftur en það er eins konar lýsi fyrir ungabörn. Núna kemur GH með krakkalýsið og vill fá sjúss:) Þannig að þetta er í raun tveir áfangar. Aldrei aftur með pelabarn og aldrei aftur með barn sem þarf AD dropa.

Mig langar rosalega til að komast í burtu. Það er svona retreat á Bali sem heitir "Empower women" held ég. Það eru tvær íslenskar konur með þetta og þetta er svona get-away fyrir konur til að efla þær. Held að ég hefði gott af þessu. Ég finn að ég hef ekki orku lengur í börnin og hef voða lítið að gefa þeim. Vinkona mín sem er nýskilin sagði að skilnaðurinn hefði verið góður að því leyti að núna hefur hún meira að gefa af sér fyrir börnin hennar þar sem hún fær alltaf vikufrí frá þeim aðra hverja viku. Það er sem sagt þannig að börnin eru alltaf í íbúðinni en mamman er heima með þeim aðra hverja viku og pabbinn hina vikuna. Núna eru þau bæði komin með nýja maka og eru heima hjá þeim vikuna sem þau eru í fríi frá börnunum. Win win situation.

Ég ætti kannski bara að skilja....

No comments: