Mmmm 3. dagur ársins að verða búinn.
Home sweet home að þessu sinni. Stundum er það bara það allra besta. Verð reyndar að viðurkenna að mig langar á skíði en vona að morgundagurinn bjóði upp á það.
Það sem ég afrekaði svona helst í dag í heimilisstörfunum var að koma þessari hrúgu af sokkum:
(hey, þarna sést í bumbuna á mér... oh, þessi kviðfita...) ... í þessa hrúgu af sokkum:
ta dara! Svona getur maður verið duglegur:)
Unglingurinn minn er líklegast tölvusjúklingur sem notar skó númer 42. Miðjan er búin að vera í rosalega löngu fríi, gott að skólinn byrjar á mánudaginn. Guðrún Halla skottast hérna um og dúllast, falleg þessi elska:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment